Mótsstjórn á fyrsta móti ársins á Íslandsbankamótaröð unglinga fundaði í morgun. Mótsstjórnin tók þá ákvörðun að fella niður fyrstu umferðina af alls þremur í flokki 17–18 ára sem átti að fara fram í dag, föstudaginn 27. maí.
Þetta er gert þar sem veðurspáin er afar óhagstæð en mótið fer fram á Hólmsvelli í Leiru. Spáð er mikilli úrkomu samhliða töluverðu hvassviðri.
Rástímar fyrir 2. umferð í flokki 17-18 ára verða birtir á golf.is.