Íslandsmót golfklúbba 12 ára og yngri fór fram dagana 30. ágúst til 1. september og var leikið á þremur keppnisvöllum.
Smelltu hér fyrir myndasafn á gsimyndir.is
Á fyrsta keppnisdegi var leikið á Bakkakotsvelli GM, á öðrum keppnisdegi stóð til að leika á Mýrinni hjá GKG en vegna veðurs var mótið fært innandyra og leikið var í golfhermum GKG með keppnisfyrirkomulagi mótsins.
Lokakeppnisdagurinn fór fram á Sveinkotsvelli hjá Keili og þar var jafnframt verðlaunaafhending og lokahóf.
Á þessu Íslandsmóti er leikið eftir PGA Junior League fyrirmyndinni, sem kallast PGA krakkagolf á Íslandi. Liðin geta verið skipuð drengjum eingöngu, stúlkum eingöngu eða blönduð lið.
Leiknar voru 9 holur í hverri umferð með Texas Scramble höggleiks fyrirkomulagi, sem skiptast upp í þrjá þriggja holu leiki.
Alls tóku þátt 26 sveitir frá 8 golfklúbbum og léku rúmlega 130 kylfingar á als oddi í þessari skemmtilegu liðakeppni.
Úrslit urðu eftirfarandi:
Hvíta deildin:

Golfklúbbur Akureyrar sigraði, og er því Íslandsmeistari golfklúbba 12 ára og yngri árið 2024.
1. sæti Golfklúbbur Akureyrar
2. sæti Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæar, GKG
3. sæti Golfklúbbur Mosfellsbæjar, GM
4. sæti Golfklúbbur Reykjavíkur, GR
5. sæti Nesklúbburinn, NK
6. sæti Golfklúbbur Skagafjarðar, GSS

Gula deildin:
1. sæti Golfklúbbur Mosfellsbæjar, GM
2. sæti Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæar, GKG
3. sæti Nesklúbburinn, NK
4. sæti Golfklúbburinn Oddur, GO
Bláa deildin:

1. sæti Golfklúbbur Suðurnesja, GS
2. sæti Golfklúbburinn Keilir, GK
3. sæti Nesklúbburinn, NK
4. sæti Golfklúbburinn Oddur, GO
Rauða deildin:

1. sæti Golfklúbbur Reykjavíkur, GR
2. sæti Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæar, GKG
3. sæti Golfklúbburinn Keilir, GK
4. sæti Golfklúbbur Mosfellsbæjar, GM
Græna deildin:

1. sæti Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæar, GKG
2. sæti Golfklúbbur Reykjavíkur, GR
3. sæti Nesklúbburinn, NK
4. sæti Golfklúbbur Skagafjarðar, GSS
Gráa deildin:

1. sæti Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæar, GKG
2. sæti Golfklúbbur Skagafjarðar, GSS
3. sæti Golfklúbbur Reykjavíkur, GR
4. sæti Golfklúbburinn Keilir, GK



