Íslandsmót unglinga í höggleik 14 ára og yngri fer fram á Korpuvelli hjá Golfklúbbi Reykjavíkur dagana 18.-20. ágúst. Skráningur lýkur sunnudaginn 13. ágúst 2023.
Smelltu hér til að skrá þig.
Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á fyrir kl. 23:59 á sunnudeginum 13. ágúst.
Mótsgjald er 8.500 kr. Þátttökugjöld skulu greidd við skráningu. Engar undantekningar á skráningu í mótið verða leyfðar eftir að skráningu lýkur, þó svo laus sæti séu í mótið.
Keppt er í eftirtöldum flokkum:
- Stúlknaflokkur 12 ára og yngri, hámarksforgjöf 40,0 – 27 holu höggleikur án forgjafar
- Piltaflokkur 12 ára og yngri, hámarksforgjöf 40,0 – 27 holu höggleikur án forgjafar
- Stúlknaflokkur 13-14 ára, hámarksforgjöf 32,0 – 54 holu höggleikur án forgjafar
- Piltaflokkur 13-14 ára, hámarksforgjöf 32,0 – 54 holu höggleikur án forgjafar
Aldur miðast við almanaksár.
Þátttökurétt í hverjum flokki hafa, í þessari röð:
1. Efstu leikmenn á unglingastigalista GSÍ á yfirstandandi ári í viðkomandi flokki, þegar skráningarfresti lýkur (á ekki við í flokkum 12 ára og yngri). Mótsstjórn ákveður fjölda leikmanna. Ef tveir eða fleiri leikmenn eru jafnir í síðasta sætinu skulu þeir báðir/allir fá þátttökurétt.
2. Sigurvegarar á áskorendamótum á yfirstandandi ári í flokkum 10 ára og yngri, 12 ára og yngri og 14 ára og yngri.
3. Aðrir leikmenn með lægstu forgjöf kl. 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur. Standi val á milli keppenda með sömu forgjöf skal hlutkesti ráða.
Hámarksfjöldi leikmanna er 100, að hámarki 25 í hverjum flokki.
Ef ekki er full skráning í einhverjum flokkum skulu þeir leikmenn sem fjærst eru forgjafarmörkum í sínum flokki (þar sem er umframskráning) fá þátttökurétt. Miðað er við forgjöf leikmanna kl. 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur. Standi val á milli leikmanna með sömu forgjöf skal hlutkesti ráða.
Forfallist kylfingur eftir að rástímar 1. umferðar hafa verið gefnir út skal sá kylfingur á biðlista sem er með lægstu forgjöf í viðkomandi flokki fá þátttökurétt í ráshópi þess sem forfallaðist.
Á fyrsta keppnisdegi er keppendum raðað af handahófi á rástíma en annan og þriðja dag verður raðað út eftir skori.
Allar breytingar á skráningu í mótið ber að senda tímanlega með tölvupósti á motanefnd@golf.is. Athugið að kylfingur verður ekki afskráður úr mótinu eftir að rástímar hafa verið birtir.
Einn æfingahringur án endurgjalds er heimilaður. Keppnisvöllurinn verður opinn til æfinga fyrir skráða keppendur á þessum tímum:
- 18 holu mót: miðvikudaginn 16/8 og fimmtudaginn 17/8 frá kl. 09:00-12:00
- 9 holu mót: miðvikudaginn 16/8 og fimmtudaginn 17/8 frá kl. 11:00-12:00
Bóka þarf æfingahring hjá klúbbnum fyrir miðnætti sunnudaginn 13. ágúst í gegnum netfangið grskrifstofa@grgolf.is – athugið að greiða verður mótsgjaldið áður en æfingahringur er leikinn. Að auki eru æfingaboltar í Básum fyrir hring á keppnisdögum innifaldir í þátttökugjaldi. Athugið almennar reglur um æfingahring.
Veitt verða verðlaun fyrir 1. – 3. sæti í öllum flokkum. Ef keppendur eru jafnir í fyrsta sæti þá verður leikinn bráðabani en að öðru gilda móta- og keppendareglur GSÍ. Ef keppendur eru jafnir í öðrum sætum skiptast stig og verðlaun jafnt á milli þeirra keppenda.
Verðlaunaafhending verður haldin strax að lokinni keppni í hverjum aldursflokki fyrir sig.
Dómari: Nicholas Cathart-Jones
Mótsstjórn: Ólafur Már Einarsson, Ómar Örn Friðriksson, Dóra Eyland, Atli Þór Þorvaldsson, Sóley Bærings
Birt með fyrirvara um breytingar.