Íslandsmót unglinga í höggleik 2021 fór fram á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar á Hlíðavelli dagana 20.-22. ágúst 2021.
Perla Sól Sigurbrandsdóttir, Golfklúbbi Reykjavíkur, sigraði í flokki 15-16 ára stúlkna á 233 höggum eða 17 höggum yfir pari vallar (76-76-81).
Berglind Erla Baldursdóttir, Golfklúbbi Mosfellsbæjar, varð önnur á 241 höggi eða 25 höggum yfir pari (80-80-81).
Helga Signý Pálsdóttir, Golfklúbbi Reykjavíkur, varð þriðja á 245 höggum eða 29 höggum yfir pari (82-76-87).
Smellltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit.
Myndasafn frá Íslandsmóti unglinga 2021 – smelltu hér.