Unglingamótaröðin 2024.
Auglýsing

Íslandsmót unglinga í höggleik 15-18 ára fer fram á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar 16.-18. ágúst.

Opið er fyrir skráningu. Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á fyrir kl. 23:59 á sunnudeginum 11. ágúst 2024.

Smelltu hér til að skrá þig:

Mótsgjald er 8.500 kr. Þátttökugjöld skulu greidd við skráningu. Engar undantekningar á skráningu í mótið verða leyfðar eftir að skráningu lýkur, þó svo laus sæti séu í mótið.

Keppt skal samkvæmt gildandi reglugerð um Íslandsmót í golfi í unglingaflokkum 15 ára og eldri ásamt móta- og keppendareglum GSÍ.

Þátttökurétt hafa (a) íslenskir ríkisborgarar og (b) erlendir kylfingar eftir a.m.k. þriggja ára

samfellda búsetu hérlendis. Þátttakendur skulu vera félagar í golfklúbbi innan vébanda GSÍ.

Keppt skal í eftirtöldum flokkum:

Stúlknaflokkur 15-16 ára, hámarksforgjöf 20,0 – bláir teigar

Stúlknaflokkur 17-18 árs, hámarksforgjöf 15,0 – bláir teigar

Piltaflokkur 15-16 ára, hámarksforgjöf 20,0 – hvítir teigar

Piltaflokkur 17-18 ára, hámarksforgjöf 15,0 – hvítir teigar

Aldur miðast við almanaksár. Hámarksforgjöf miðast við forgjöf þátttakanda kl. 8:00

morguninn eftir að skráningarfresti lýkur.

Þátttökurétt í hverjum flokki hafa, í þessari röð:

1. Sextán efstu leikmenn á unglingastigalista GSÍ á yfirstandandi ári í viðkomandi

flokki, þegar skráningarfresti lýkur. Ef tveir eða fleiri leikmenn eru jafnir í 16. sæti

skulu þeir báðir/allir fá þátttökurétt.

2. Sex efstu leikmenn í viðkomandi flokki á stigalista GSÍ á yfirstandandi ári, þegar

skráningarfresti lýkur. Ef tveir eða fleiri leikmenn eru með jafn mörg stig í 6. sæti

skulu þeir báðir/allir fá þátttökurétt.

3. Aðrir leikmenn sem fjærst eru forgjafarmörkum í sínum flokki kl. 8:00 morguninn

eftir að skráningarfresti lýkur. Standi val á milli keppenda með forgjöf jafn langt frá

forgjafarmörkum skal hlutkesti ráða.

Hámarksfjöldi leikmanna í hverjum flokki er 36 leikmenn. Ef ekki fyllist í flokkinn en

umframskráning er í öðrum flokkum fá þeir kylfingar sem næst eru forgjafarmörkum í sínum

flokki þátttökurétt þar til hámarksfjölda er náð. Allir flokkar leika 54 holu höggleik án forgjafar.

Að loknum 36 holum skal leikmunnum fækkað þannig að 70% leikmanna sem eru með besta skor í hverjum flokki halda áfram keppni. Séu tveir eða fleiri leikmenn á jafnir með hæsta skor þeirra sem halda áfram skulu þeir báðir/allir leika áfram.

Hámarksfjöldi leikmanna er 144. 

Forfallist kylfingur eftir að rástímar 1. umferðar hafa verið gefnir út skal sá kylfingur á biðlista sem er með lægstu forgjöf í viðkomandi flokki fá þátttökurétt í ráshópi þess sem forfallaðist.

Rástímar

Ræst verður út af 1. teig með 10 mínútna millibili. Á fyrsta keppnisdegi er keppendum raðað af handahófi á rástíma en annan og þriðja dag verður raðað út eftir skori.

Athugið að kylfingur verður ekki afskráður úr mótinu eftir að rástímar hafa verið birtir.

Æfingahringur

Einn æfingahringur án endurgjalds er heimilaður. Keppnisvöllurinn verður opinn til æfinga fyrir skráða keppendur 14. og 15. ágúst kl. 08:00-15:00. 

Vinsamlegast hafið samband við klúbbinn tímanlega til að bóka rástíma í æfingahringi á golfmos@golfmos.is. Athugið að greiða verður mótsgjaldið áður en æfingahringur er leikinn. Að auki eru æfingaboltar fyrir hring á keppnisdögum innifaldir í þátttökugjaldi. Athugið almennar reglur um æfingahring.

Verðlaun

Veitt verða verðlaun fyrir 1. – 3. sæti í öllum flokkum. Ef keppendur eru jafnir í fyrsta sæti þá verður leikinn bráðabani en að öðru gilda móta- og keppendareglur GSÍ. Ef keppendur eru jafnir í öðrum sætum skiptast stig og verðlaun jafnt á milli þeirra keppenda.

Verðlaunaafhending verður haldin strax að lokinni keppni í hverjum aldursflokki fyrir sig.

Annað

Leikmenn skulu skrá rafrænt skor.

Dómari: Sigurður Geirsson og Davíð Baldur Sigurðsson

Mótsstjórn: Arnar Geirsson, Kristín María Þorsteinsdóttir, Ágúst Jensson, Kristinn Viðar Sveinbjörnsson

Birt með fyrirvara um breytingar.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ