Íslandsmótið í höggleik unglinga fer fram dagana 21.-23. ágúst hjá Golfklúbbnum Keilis á Hvaleyrarvelli.
Keppt er í fjórum aldursflokkum hjá báðum kynjum. Mótið er jafnframt lokamótið á stigamótaröð GSÍ í unglingaflokki. Alls eru 166 keppendur skráðir til leiks.
Staðan í öllum flokkum er hér:
Rástímar í öllum flokkum eru hér:
Myndir frá mótinu á gsimyndir.net eru hér.
Leikfyrirkomulag
Höggleikur, 54 holur (18 holur á dag). Keppt er samkvæmt gildandi reglugerð um Íslandsmót í golfi í unglingaflokkum og Móta- og keppendareglum GSÍ.
Föstudagur Rástímar: 07:30 – 16:10 15–16 ára, 17–18 ára, 19–21 árs, 14 ára og yngri flokkar
Laugardagur Rástímar: 07:30 – 16:10 17–18 ára, 19–21 ára, 14 ára og yngri, 15–16 ára flokkar
Sunnudagur Rástímar: 07:30 – 16:10 14 ára og yngri, 15–16 ára, 17–18 ára, 19–21 árs flokkar
*með fyrirvara um breytingar
Rástímar
Rástímar verða birtir á GolfBox fyrir kl.17:00 á miðvikudeginum fyrir mót. Ræst verður út af 1. teig með 10 mínútna millibili. Á fyrsta keppnisdegi er keppendum raðað af handahófi á rástíma en annan og þriðja dag verður raðað út eftir skori.
Verði ekki full skráning í einhverjum flokki skal fjölgað í öðrum flokkum í samræmi við umframskráningu í viðkomandi flokkum. Mótsstjórn er heimilt að fjölga keppendum í einstökum flokkum til að fylla í ráshópa.
Kylfuberar og áhorfendur
Með vísan til minnisblaðs sóttvarnarlæknis, dags. 11. ágúst sl., og auglýsingar heilbrigðisráðherra 12. ágúst sl. þá liggur fyrir að áhorfendur eru ekki leyfðir á íþróttaviðburðum. Af þeim sökum verða Íslandsmót unglinga í holukeppni hjá Golfklúbbi Suðurnesja og Áskorendamótið hjá Golfklúbbi Grindavíkur leikin án áhorfenda. Þeir einu sem mega vera á íþróttasvæðinu eru keppendur, þjálfarar og starfsmenn mótanna. Golfsambandið biður alla forelda og aðra aðstandendur vinsamlegast um að virða það.
Verðlaun
Veitt verða verðlaun fyrir 1. – 3. sæti í öllum flokkum. Ef keppendur eru jafnir í fyrsta sæti þá verður leikinn bráðabani en að öðru gilda móta- og keppendareglur GSÍ. Ef keppendur eru jafnir í öðrum sætum skiptast stig og verðlaun jafnt á milli þeirra keppenda.
Verðlaunaafhending
Verðlaunaafhending verður haldin strax að lokinni keppni í hverjum aldursflokki fyrir sig.
Dómarar: Hörður Geirsson og Jón Níels Gíslason.
Mótsstjóri: Kristín María Þorsteinsdóttir
Mótsstjórn: Brynjar Geirsson, Davíð Kristján Hreiðarsson, Hörður Geirsson, Indíana Rut Jónsdóttir, Kristín María Þorsteinsdóttir, Ólafur Þór Ágústsson.