Íslandsmót unglinga í holukeppni 2022 fór fram á Hlíðavelli í Mosfellsbæ dagana 27.-29. ágúst.
Leikin var útsláttarkeppni án forgjafar.
Máni Freyr Vigfússon, GK, sigraði í flokki 12 ára og yngri. Í úrslitaleiknum var Hjalti Kristján Hjaltason GM, mótherji Mána Freys en úrslitaleiknum lauk með 5/3 sigri Mána Freys.
Björn Breki Halldórsson, GKG, varð þriðji en hann sigraði Halldór Jóhannsson, GK, 2/1, í leiknum um bronsverðlaunin.
Á leið sinni að titlinum sigraði Máni Freyr, Ívar Örn Sigurðarson, 1/0 í 16-manna úrslitum. Hann sigraði Ingimar Jónasson, GR, 7/6 í 8-manna úrslitum. Í undanúrslitum sgiraði Máni, Björn Breka Halldórsson, GKG, 6/5.
Smelltu hér fyrir myndir frá Íslandsmóti unglinga í holukeppni 2022.