Auglýsing

Íslandsmót unglinga í holukeppni 2024 fer fram á Kirkjubólsvelli hjá Golfklúbbi Sandgerðis dagana 24.-26. ágúst.

Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á GolfBox fyrir kl. 23:59 mánudaginn 19. ágúst.
Engar undantekningar á skráningu í mótið verða leyfðar eftir að skráningu lýkur.

Skráning er opin – smelltu hér til að skrá þig.

Smelltu hér fyrir stigalistana 2024:

Þátttökurétt hafa (a) íslenskir ríkisborgarar og (b) erlendir kylfingar eftir a.m.k. þriggja ára samfellda búsetu hérlendis. Þátttakendur skulu vera félagar í golfklúbbi innan vébanda GSÍ.

Keppt er í eftirtöldum flokkum:

Stelpnaflokkur 12 ára og yngri, hámarksforgjöf 40,0 – rauðir teigar
Stelpnaflokkur 13-14 ára, hámarksforgjöf 32,0 – rauðir teigar
Telpnaflokkur 15-16 ára, hámarksforgjöf 20,0 – bláir teigar
Stúlknaflokkur 17-18 ára, hámarksforgjöf 15,0 – bláir teigar
Strákaflokkur 12 ára og yngri, hámarksforgjöf 40,0 – rauðir teigar
Strákaflokkur 13-14 ára, hámarksforgjöf 32,0 – rauðir teigar
Drengjaflokkur 15-16 ára, hámarksforgjöf 20,0 – gulir teigar
Piltaflokkur 17-18 ára, hámarksforgjöf 15,0 – gulir teigar

Aldur miðast við almanaksár. Hámarksforgjöf miðast við forgjöf þátttakanda kl. 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur.

Þátttökurétt í flokkum 15-16 ára og 17-18 ára hafa, í þessari röð:

Sextán stigahæstu leikmenn á stigamótaröð unglinga þegar skráningarfrestur rennur út. Séu leikmenn jafnir í sæti á stigamótaröðinni telst sá ofar sem náð hefur efra sæti á öðrum stigamótum ársins. Séu leikmenn þá enn jafnir ræður hlutkesti.

Aðrir leikmenn með stig á stigamótaröð unglinga þegar skráningarfrestur rennur út. Röð ákvarðast af sætum á stigamótaröðinni. Séu leikmenn jafnir í sæti á stigamótaröðinni telst sá ofar sem náð hefur efra sæti á öðrum stigamótum ársins.

Séu leikmenn þá enn jafnir ræður hlutkesti.

Aðrir leikmenn sem uppfylla þátttökuskilyrði. Röð ákvarðast af forgjöf kl. 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur. Standi val á milli leikmanna með sömu forgjöf skal hlutkesti ráða.

Þátttökurétt í flokkum 12 ára og yngri og 13-14 ára hafa, í þessari röð:

Tíu efstu leikmenn í Íslandsmóti í höggleik í unglingaflokkum 14 ára og yngri. Séu leikmenn jafnir í því móti telst sá ofar sem var með lægsta skor á síðustu 18, 9, 6, 3, 1 holum í flokki 12 ára og yngri og síðustu 36, 18, 9, 6, 3, 1 holum í flokki 13-14 ára.

Aðrir leikmenn sem uppfylla þátttökuskilyrði. Röð ákvarðast af forgjöf kl. 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur. Standi val á milli leikmanna með sömu forgjöf skal hlutkesti ráða.

Leikin er útsláttarkeppni án forgjafar:

  1. umferð: 16 manna holukeppni
  2. umferð: 8 manna holukeppni þeirra sem áfram komast
  3. umferð: Undanúrslit, 4 manna holukeppni þeirra sem áfram komast
  4. umferð: Úrslit, leikur um 3. sæti og úrslitaleikur

Röðun leikmanna í 16 manna úrslitum er samkvæmt skráningarröð þátttakenda í 7. grein í flokkum 15-16 ára og 17-18 ára. Stigahæsti leikmaður á stigamótaröð unglinga leikur við þann stigalægsta (eða leikmanninn með hæstu forgjöf kl. 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur, ef teknir eru inn leikmenn án stiga á stigamótaröðinni), leikmaðurinn með næst flest stig á stigamótaröð unglinga leikur við þann næst stigalægsta (eða leikmanninn með næst hæstu forgjöf kl. 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur, ef teknir eru inn leikmenn án stiga á stigamótaröðinni) o.s.frv. Röðun leikmanna í 16 manna úrslitum í flokkum 12 ára og yngri og 13-14 ára er eftir forgjöf. Röð ákvarðast af forgjöf kl. 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur. Standi val milli leikmanna með sömu forgjöf skal hlutkesti ráða). Forgjafarlægsti leikmaðurinn leikur við þann forgjafarhæsta, leikmaður með næst lægstu forgjöf leikur við leikmann með næst hæstu forgjöf og svo koll af kolli. Ef keppendur í tilteknum flokki eru 8 eða færri er 16 manna úrslitum sleppt og keppendur fara beint í 8 manna úrslit, með sambærilegri röðun og lýst er varðandi 16 manna úrslit.

Skráning og mótsgjald

Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á GolfBox fyrir kl. 23:59 mánudaginn 19. ágúst. Engar undantekningar á skráningu í mótið verða leyfðar eftir að skráningu lýkur.

Skráðir kylfingar sem ekki fá þátttökurétt vegna hámarksfjölda fara á biðlista í sínum flokki. Röð keppenda á biðlista ræðst af röð þeirra á stigalista og að því frátöldu af forgjöf kl. 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur.

Verði forföll fyrir fyrsta keppnisdag verður haft samband við kylfinga á biðlista og þeim boðin þátttaka. Kylfingar á biðlista geta mætt á keppnisstað að morgni fyrsta keppnisdags og verið til taks ef forföll verða. Viðkomandi þurfa að gefa sig fram við afgreiðslu.

Mótsgjald er 6.500 kr. í öllum flokkum. Komist keppandi ekki inn í mótið mun hann fá endurgreitt í vikunni eftir mótið.

Þátttökugjöld skulu greidd við skráningu. Þátttökugjald fæst einungis endurgreitt séu forföll boðuð eigi síðar en kl. 18:00, þremur dögum fyrir fyrsta keppnisdag.

Verði forföll eftir að leikröð hefur verið auglýst skal leikmanni á biðlista boðið að taka sæti þess sem forfallaðist, en leikröð er ekki ákvörðuð að nýju.

Æfingahringur

Einn æfingahringur er innifalinn í mótsgjaldi. Keppnisvöllurinn verður opinn til æfinga fyrir skráða keppendur í síðasta lagi einum degi fyrir mót. En athugið að greiða verður mótsgjaldið áður en æfingahringur er leikinn. Bóka þarf æfingahring í GolfBox.

Verðlaun

Veitt verða verðlaun fyrir 1. – 3. sæti í öllum flokkum.

Verðlaunaafhending

Verðlaunaafhending er haldin strax að lokinni keppni í hverjum aldursflokki fyrir sig.

Dómarar: Bergsveinn Þórarinsson, Jón K Baldursson, Helgi Már Halldórsson.

Mótsstjórn: Brynjar Geirsson, Kristín María Þorsteinsdóttir, Ólafur Björn Loftsson, Bergsveinn Þórarinsson, Lárus Óskarsson.

Birt með fyrirvara um breytingar.


Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ