Íslandsmót unglinga í höggleik fer fram á Hólmsvelli í Leiru hjá Golfklúbbi Suðurnesja dagana 22.-24. júní n.k. Skráning stendur enn yfir. Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á www.golf.is fyrir kl. 23:59 á þriðjudeginum fyrir mótið. Engar undantekningar á skráningu í mótið verða leyfðar eftir að skráningu lýkur, þó svo laus sæti séu í mótið.
Leikfyrirkomulag
Höggleikur í unglingaflokki, 54 holur skulu leiknar. 18 holur á dag. Keppt skal samkvæmt gildandi reglugerð um Íslandsmót í golfi í unglingaflokkum og Móta- og keppendareglum GSÍ.
Rástímar: Rástímar verða birtir á golf.is fyrir kl.17:00 á miðvikudeginum fyrir mót. Ræst verður út af 1. teig með 10 mínútna millibili. Á fyrsta keppnisdegi er keppendum raðað af handahófi á rástíma en annan og þriðja dag verður raðað út eftir skori.
Þátttökurréttur:
Hámark 144 keppendur geta tekið þátt í Íslandsmóti unglinga í höggleik sem skiptist niður í þrjá aldursflokka. Í hverjum aldursflokki verða hámark 48 keppendur, þar af verða 36 strákar og 12 stelpur.
Ef fjöldi skráðra keppenda fer yfir hámark í hverjum flokki ræður forgjöf því hverjir komast inn í hvern flokk fyrir sig. Þ.e.a.s 36 forgjafarlægstu strákarnir og 12 forgjafarlægstu stelpurnar í þeim flokki komast í mótið.
Standi val á milli keppenda með jafnháa forgjöf skal hlutkesti ráða. Ef ekki næst hámarksfjöldi í einhvern flokk má mótsstjórn bæta við keppendum úr öðrum aldursflokkum. Mótsstjórn er heimilt að fjölga keppendum.
Þátttökurétt öðlast erlendir kylfingar ekki fyrr en eftir a.m.k. þriggja ára samfellda búsetu hérlendis.