Ragnhildur Kristinsdóttir, GR og Logi Sigurðsson, GS. Mynd/seth@golf.is
Auglýsing

Íslandsmótið í golfi 2024 fer fram á Hólmsvelli í Leiru dagana 18.-21. júlí. Opið er fyrir skráningu en skráningarfrestur er til kl. 23:59 fimmtudaginn 4. júlí.

Smelltu hér til að skrá þig:

Keppnisskilmálar Íslandsmótsins í golfi 2024

Keppt skal samkvæmt gildandi reglugerð um Íslandsmót í golfi karla og kvenna og móta- og keppendareglum GSI

Þátttökuréttur og niðurskurður

Höggleikur í flokki karla og kvenna án forgjafar, leiknar verða 72 holur á fjórum dögum. Þátttökurétt hafa (a) íslenskir ríkisborgarar og (b) erlendir kylfingar eftir a.m.k. þriggja ára samfellda búsetu hérlendis. Hámarksfjöldi þátttakenda skal vera 150. Í karlaflokki er hámarksforgjöf 5,5 og í kvennaflokki 8,5. Þátttakendur skulu vera félagar í golfklúbbi innan vébanda GSÍ.

Þátttökurétt í hvorum flokki hafa, í þessari röð:

  1. Fyrrum Íslandsmeistarar í golfi.
  2. Leikmenn með stig á heimslista atvinnukylfinga (www.owgr.com) kl. 8:00
    morguninn eftir að skráningarfresti lýkur.
  3. Leikmenn í sætum 1 – 2000 á heimslista áhugakylfinga (www.wagr.com) kl. 8:00
    morguninn eftir að skráningarfresti lýkur.
  4. Leikmenn í sætum 1 – 32 á stigalista GSÍ á yfirstandandi ári. Ef tveir eða fleiri
    leikmenn eru jafnir í 32. sæti skulu þeir báðir/allir fá þátttökurétt.
  5. Aðrir leikmenn sem fjærst eru forgjafarmörkum í sínum flokki kl. 8:00 morguninn
    eftir að skráningarfresti lýkur. Standi val á milli keppenda með forgjöf jafnlangt frá forgjafarmörkum skal hlutkesti ráða.

Þó skulu að lágmarki 36 kylfingar fá þátttökurétt í hvorum flokki. Keppendum skal þó fjölgað þannig að fullir ráshópar verði í hvorum flokki.

Eftir 36 holu leik skal leikmönnum fækkað þannig að þau 60% leikmanna sem eru með besta skor í hvorum flokki halda áfram keppni. Ef leikmenn eru á sama skori og sá sem er með lakastan árangur þeirra sem halda áfram skulu þeir báðir/allir halda áfram. Einnig skulu leikmenn ætíð fá að halda áfram keppni séu þeir 10 höggum eða minna á eftir þeim leikmanni sem er í 1. sæti.

Skráning

Skráning í mótið fer fram í GolfBox og er skylda að greiða mótsgjald við skráningu. Allir kylfingar geta skráð sig en tryggð þátttaka skýrist þó ekki fyrr en eftir að skráningafresti lýkur og endanlegur keppendalisti hefur verið gefinn út. Þeir kylfingar sem skrá sig í mótið en fá ekki þátttökurétt munu fá mótsgjald endurgreitt.

Skráningarfrestur er til kl. 23:59 fimmtudaginn 4. júlí.

Sjá eftirfarandi reglur sem eru í gildi í mótinu:

  • Almennir keppnisskilmálar og staðarreglur GSÍ
  • Almennar staðarreglur um hegðun leikmanna
  • Almennar staðarreglur um leikhraða
  • Móta- og keppendareglur GSÍ
  • Reglugerð um Íslandsmótið í golfi

Mótsgjald og æfingahringir

Mótsgjald er 22.000 kr. Innifaldir eru tveir æfingahringir, æfingaboltar á meðan á móti stendur og miði í lokahóf. Mótsgjald fæst einungis endurgreitt séu forföll boðuð eigi síðar en kl. 18:00, þremur dögum fyrir fyrsta keppnisdag.

Formlegir æfingadagar eru mánudaginn 15. júlí, þriðjudaginn 16. júlí og miðvikudaginn 17. júlí. Kylfingar þurfa að skrá sig sjálfir í gegnum GolfBox mót:

Mánudagur – https://tourentry.golfbox.dk/?cid=4610184 

Þriðjudagur – https://tourentry.golfbox.dk/?cid=4610202

Miðvikudagur – https://tourentry.golfbox.dk/?cid=4610204

Vinsamlegast athugið að kylfingar þurfa að hafa skráð sig í mótið og greitt mótsgjald til að geta leikið æfingahring.

Lokahóf

Miði á lokahóf er innifalinn í mótsgjaldi.

Verðlaun

Veitt verða peningaverðlaun fyrir 1. – 3. sæti í flokki karla og kvenna.

  1. sæti 140.000 kr. (500.000 kr. fyrir atvinnukylfinga) 
  2. sæti 100.000 kr. (300.000 kr. fyrir atvinnukylfinga)  
  3. sæti 70.000 kr. (150.000 kr. fyrir atvinnukylfinga)

Undankeppni

Verði umfram skráning í mótið sem nemur a.m.k. níu keppendum í öðrum hvorum eða báðum flokkum mun undankeppni fara fram. Umframskráningin skal bundin við þá leikmenn sem standast forgjafarmörk og hafa skráð sig til keppni í Íslandsmótinu innan tilskilins skráningarfrests. Keppt verður um tvö síðustu sætin í viðkomandi flokki.

Undankeppnin er 18 holu höggleikur án forgjafar og fer fram 15. júlí á Hólmsvelli. Ræst verður út af 1. teig frá kl. 08:00. Verði leikmenn jafnir skal leika bráðabana um efstu tvö sætin. Undankeppnin verður því aðeins haldin að minnst fjórir keppendur skrái sig í undankeppnina í viðkomandi flokki.

Biðlisti

Verði undankeppninni aflýst (t.d. ef lágmarksfjölda þátttakenda er ekki náð) skulu leikmenn sem skráðu sig í undankeppnina hafa forgang varðandi þátttöku í Íslandsmótinu umfram þá sem ekki skráðu sig. Fari undankeppnin fram ræðst röð leikmanna á biðlista af árangri í undankeppninni og að því frátöldu af forgjöf kl. 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur.

Ef tveir eða fleiri kylfingar eru með sama skor í undankeppni (í sætum 3 og aftar) eða jafnháa forgjöf hafi þeir ekki tekið í þátt í undankeppni, ræður hlutkesti röð á biðlista. Verði forföll fyrir fyrsta keppnisdag verður haft samband við kylfinga á biðlista og þeim boðin þátttaka. Kylfingar á biðlista geta mætt á keppnisstað að morgni fyrsta keppnisdags og verið til taks ef forföll verða. Viðkomandi þurfa að gefa sig fram við afgreiðslu.

Annað

Með þátttöku í mótinu heimila keppendur myndatöku og myndbirtingar á miðlum GSÍ og hjá RÚV.

Kylfingar skulu staðfesta mætingu í afgreiðslu á æfingadögum.

Ekki verður tekið á móti skráningum eftir að skráningarfresti lýkur.

Mótsstjórn: Brynjar Geirsson, Karen Sævarsdóttir, Kristín María Þorsteinsdóttir, Ólafur Björn Loftsson, Kristján Björgvinsson, Örn Ævar Hjartarson.

​Netfang mótsstjórnar: motanefnd@golf.is

Dómari: Aron Hauksson

Birt með fyrirvara um breytingar.


Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ