Íslandsmótið í holukeppni í karlaflokki fór fram dagana 22.-24. júní á Garðavelli á Akranesi hjá Golfklúbbnum Leyni.
Mótið var það 36. í röðinni frá því að fyrst var keppt um Íslandsmeistaratitilinn í holukeppni árið 1988.
Í fyrri hluta keppninnar var leikinn 36 holu höggleikur án forgjafar, þar sem sextán efstu keppendurnir komust áfram í útsláttarkeppni.
Hér er myndband frá mótinu sem var þriðja mót tímabilsins á GSÍ mótaröðinni 2024.