Helgi Bragason, formaður Golfklúbbs Vestmannaeyja, afhenti Íslandsmótsfána GSÍ með formlegum hætti um s.l. helgi.
Íslandsmótið í golfi fór fram í Vestmannaeyjum í júlí 2017 en á næsta ári verður það haldið hjá Golfklúbbi Reykjavíkur.
Björn Víglundsson, formaður GR, tók við Íslandsmótsfánanum á formannafundi GSÍ sem fram fór í Gjánni í Grindavík.