Kvennalandsliðið í golfi endaði í 18. sæti af alls 19. þjóðum á Evrópumótinu sem fram fór á Montado Resort í Portúgal. Englendingar vörðu titilinn frá því í fyrra með yfirburðasigri gegn Ítalíu í úrslitaleiknum en EM fór fram hér á landi fyrir ári síðan. Svíar enduðu í þriðja sæti eftir sigur gegn Spánverjum.
Ísland sigraði Portúgal í keppni sæti 17.-19. í C-riðli í holukeppninni en tapaði 4:1 gegn Finnum.
Ísland lék á +38 samtals í höggleiknum en Portúgal lék á +45 og endaði í neðsta sætinu í höggleiknum.
Að loknum höggleiknum tók við holukeppni þar sem að liðin í sætum 1.-8. kepptu um Evrópumeistaratitilinn í A-riðli, liðin í sætum 9.-16. kepptu í B-riðli og liðin í sætum 17.-20. keppa í C-riðli.
Fimm bestu skorin á hverjum hring töldu í hverri umferð.
Ragnhildur Krisinsdóttir úr GR náði bestum árangri í íslenska liðinu en hún endaði í 23. sæti í einstaklingskeppnini á -1 samtals.
Ragnhildur lék hringina tvo á 74 og 69 höggum og var síðari hringurinn glæsilegur hjá Ragnhildi.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir var á parinu samtals (72-72) og endaði í 34. sæti.
Helga Kristín Einarsdóttir úr GK endaði í 93. sæti á (77-76).
Saga Traustadóttir úr GR lék á 156 höggum eða 79-77 og endaði í 101.sæti. Berglind Björnsdóttir úr GR lék á 83-81 og endaði í 111. sæti og Anna Sólveig Snorradóttir lék á (81-85) og endaði í 112. sæti.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr GK lék best á fyrsta hringnum eða á pari vallar eða 72 höggum. Ragnhildur Kristinsdóttir úr GR lék á 74 höggum (+2), Helga Kristín Einarsdóttir (GK( 77 (+5), Saga Traustadóttir (GR) 79 (+7), Anna Sólveig Snorradóttir (GK) 81 (+9) og skor Berglindar Björnsdóttir (GR) 83 (+11) taldi ekki í dag.