/

Deildu:

Auglýsing

Arnór Snær Guðmundsson úr Golfklúbbnum Hamri Dalvík endaði í 29.-30. sæti á Opna ítalska áhugamannamótinu 16 ára og yngri. Henning Darri Þórðarson úr GK varð í 38.-39. sæti en Fannar Ingi Steingrímsson úr Golklúbbi Hveragerðis komst ekki í gegnum niðurskurðinn eftir aðra umferð.  Í liðakeppninni á þessu móti þá endaði íslenska sveitin í fjórða sæti en fyrstu tveir keppnisdagarnir töldu í liðakeppninni.

Henning Darri lék hringina fjóra á 22 höggum yfir pari samtals (77-75-81-81) og Arnór Snær lék á +18 samtals (78-75-81-76). Fannar Ingi lék  fyrstu tvo hringina á 83 og 79 (+16) og endaði hann í 67.-72.. sæti.

 Lokastaðan:

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ