Þrír íslenskir kylfingar tóku þátt á Opna breska áhugamannamótinu (British Amateur) sem fram fer á Royal Aberdeen Golf Club í Skotlandi. Gísli Sveinbergsson úr Keili, Bjarki Pétursson úr GB og Aron Snær Júlíusson úr GKG. Jussi Pitkanen afreksstjóri GSÍ var með þeim í þessari keppnisferð.
Íslensku kylfingarnir náðu ekki að komast í gegnum 64 manna niðurskurðinn og eru því úr leik.
Gísli Sveinbergsson lék á 75 og 74 höggum. Hann endaði á +8 samtals og var þremur höggum frá því að komast áfram.
Bjarki Pétursson lék á 78 og 73 höggum. Hann endaði á +8 höggum líkt og Gísli og þeir deildu 101. sætinu.
Aron Snær lék á 78 og 72 höggum eða +9 samtals. Hann endaði í 119. sæti.
Mótið er eitt það virtasta og sterkasta hjá áhugakylfingum og sigurvegarinn fær boð um að taka þátt á þremur risamótum atvinnukylfinga, Mastersmótinu, Opna breska og Opna bandaríska.
Alls eru 288 keppendur og leika þeir alls 36 holur í höggleik fyrstu tvo keppnisdagana. Síðan tekur við holukeppni en 64 efstu eftir höggleikinn komast í gegnum niðurskurðinn.
Í holukeppninni eru leiknar 18 holur í hverri umferð þar til að tveir mætast í úrslitaleik um sigurinn.