Frá og með deginum í dag, 25. maí 2020, getur íþróttaiðkun allra aldurshópa í landinu nú farið fram án takmarkana.
Þetta kemur fram í auglýsingu frá heilbrigðisráðuneytinu.
Engar takmarkanir eru því á golfíþróttinni en gæta þarf samt sem áður fyllsta öryggist í kringum sameiginlega snertifleti.
Golfklúbbum landsins er í sjálfsvald sett hvort þeir velji það að hafa áfram sínar eigin staðarreglur. Það er einnig ákvörðun hvers golfklúbbs fyrir sig hvernig þeir aflétta þeim takmörkunum sem hafa verið í gildi á undanförnum vikum.
Má þar nefna hvort það eigi að hafa svamp áfram í holubotni, að flaggstangir séu teknar úr, eða að hrífur séu í glompum.
Áfram verða þó fjöldatakmarkanir á íþróttaviðburðum sem og öðrum viðburðum, þannig að ekki mega fleiri en 200 einstaklingar koma saman, hvort sem er í opinberum rýmum eða einkarýmum.
Það þýðir takmarkanir á fjölda áhorfenda á íþróttaviðburðum.
Auglýsing um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.
Frétt heilbrigðisráðuneytis um nýja auglýsingu um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.