Fjórða mót tímabilsins á Áskorendamótaröð Íslandsbanka fór fram á Svarfhólsvelli um s.l. helgi. Mótið er ætlað yngri kylfingum sem vilja öðlast keppnisreynslu áður en þeir stíga inn á sjálfa Íslandsbankamótaröðina. Rúmlega 50 keppendur tóku þátt við fínar aðstæður á Selfossi. Eggert Ágúst Sverrisson varaforseti Golfsambands Íslands afhenti verðlaunin í mótslok.
Úrslit urðu eftirfarandi: