/

Deildu:

Auglýsing
Golfsamband Íslands hefur ákveðið, í samstarfi við Golfklúbb Vestmannaeyja, að fylgja eftir nýlegu afnámi á 18-holna kröfunni úr mótsreglugerðum GSÍ með því að leika 13 holur í stað 18 í KPMG bikarnum – Íslandsmótinu í holukeppni, sem fram fer í Eyjum 23. – 25. júní nk. Þetta verður í fyrsta sinn, svo vitað sé, sem landskeppni rótgróinnar golfþjóðar fer fram á velli með færri en 18 holur.

Afnám GSÍ á 18-holna kröfunni vakti talsverða athygli í golfheiminum og segir Haukur Örn Birgisson, forseti GSÍ, að rætt hefði verið lauslega um að fylgja þeirri ákvörðun eftir með því að halda Íslandsmótið í holukeppni á velli með færri en átján holur.

„Við ákváðum ásamt Eyjamönnum að láta slag standa núna, frekar en að bíða færis síðar, eftir að nokkrar flatanna í Eyjum virtust hafa mátt þola óvenju mikla sjávarseltu. Við gerum þetta til að hlífa umræddum flötum og af virðingu við keppendur, sem eiga skilið að leika við bestu mögulegu aðstæður. Enn fremur er þetta táknræn aðgerð til að vekja golfhreyfinguna til umhugsunar um það hversu mikla áherslu við eigum að leggja á 18 holur. Þar höfum við tekið forystu á alþjóðavettvangi og finnum fyrir meðbyr vegna þess,“ segir Haukur.

Eftir að hugmyndin kom fyrst upp leituðu GSÍ og GV aðstoðar við frekari útfærslu hjá Edwin Roald golfvallahönnuði, sem vakið hefur máls á og leitt umræðu innanlands og utan um að taka aftur upp þann sveigjanlega holufjölda sem áður einkenndi golfleikinn, eins og fram kemur á vef hans, why18holes.com.

Niðurstaðan er að brautum nr. 7, 13, 14, 15 og 17 verður sleppt og öðrum endurraðað til að tengja þær sem best saman og að sem flestum leikjum ljúki við skála. Hver leikur verður þannig þrettán holur og honum fram haldið á fyrstu braut vallarins og áfram ef leikar eru jafnir að 13 holum loknum, þar til úrslit fást.

Frá Vestmannaeyjavelli, Eimskipsmótaröðin 2015. Mynd/seth@golf.is

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ