Ölgerðin og Golfsamband Íslands skrifuðu undir samstarfssamning á dögunum, og er Ölgerðin með vörumerkið „Kristall“ þar með orðin hluti af GSÍ fjölskyldunni.
„Við erum gríðarlega ánægð að vera komin í GSÍ fjölskylduna. Það eru spennandi hlutir framundan í starfi GSÍ sem verður gaman að taka þátt í með Kristal,” segir Jóhannes Páll Sigurðarson vörumerkjastjóri óáfengra drykkja hjá Ölgerðinni.
„Við hjá Golfsambandi Íslands erum virkilega spennt fyrir samstarfinu. Við sjáum marga fleti í þessu samstarfi á komandi árum á mörgum sviðum líkt og að auka útbreiðslu íþróttarinnar. Við bjóðum Ölgerðina velkomna í GSÍ fjölskylduna þar sem þau koma í hóp fleiri framúrskarandi fyrirtækja,“ sagði Brynjar Eldon Geirsson framkvæmdastjóri GSÍ.