Kristján Þór Einarsson úr Golfklúbbnum Kili er efstur í karlaflokki á sjötta sitgamóti Eimskipsmótaraðarinnar sem fram fer á Garðavelli Akranesi. Kristján Þór lék í dag á 74 höggum og samtals á 1 höggi undir pari eftir 36 holur. Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur er annar á 2 höggum yfir pari, hann lék í dag á 73 höggum. í þriðja sæti er Arnór Ingi Finnbjörnsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur á 4 höggum yfir pari. Þessir þrír kylfingar munu skipa Tiger hollið á morgun þegar loka hringurinn fer fram
1.sæti Kristján Þór Einarsson GKJ 69/74 = 143 -1
2.sæti Guðmundur Ágúst Kristjánsson GR 73/73 = 146 +2
3.sæti Arnór Ingi Finnbjörnsson GR 75/73 = 148 +4