Kristjáni Þór Einarssyni úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar er spáð stigameistaratitlinum á Eimskipsmótaröðinni í golfi karla 2016. Þetta kom fram í spá sérfræðinga sem golf.is fékk til þess að spá fyrir um hvaða fimm kylfingar myndu enda í fimm efstu sætunum í lok keppnistímabilsins. Kristján Þór fékk 42 stig en Haraldur Franklín Magnús úr GR varð annar.
Spáin var kynnt á fundi með fréttamönnum í dag á Urriðavelli þar sem að helstu breytingarnar á Eimskipsmótaröðin 2016 voru m.a. kynntar.
Fimm efstu í spá sérfræðinga golf.is í karlaflokki 2016.
- Kristján Þór Einarsson (42)
- Haraldur Franklín Magnús (38)
- Axel Bóasson (36)
- Gísli Sveinbergsson (33)
- Sigurþór Jónsson (28)Eimskipsmótaröðin hefst á föstudaginn á Strandarvelli á Hellu en hér fyrir neðan er keppnisdagskráin fyrir tímabilið 2016.