Í ljósi þess að spáin er slæm á morgun, föstudaginn 15. júlí, rigning og suðaustan strekkingur hefur mótsstjórn Íslandsmóts unglinga ákveðið að heimila kylfubera í öllum flokkum.
*Athugið að þessi ákvörðun á eingöngu við um föstudaginn 15. júli, spáin er góð fyrir laugardaginn og sunnudaginn.
Vinsamlegast kynnið ykkur keppnisskilmála um kylfubera á íslandsbankamótaröðinni.
Mótsstjórn.