GSÍ fjölskyldan

Deildu:

Efri röð frá vinstri: Veigar Heiðarsson, Guðjón Frans Halldórsson, Skúli Gunnar Ágústsson, Böðvar Bragi Pálsson, Gunnar Þór Heimisson, Arnar Daði Svavarsson, Hjalti Kristján Hjaltason, Kristján Karl Guðjónsson
Miðröð frá vinstri: Fjóla Margrét Viðarsdóttir, Perla Sól Sigurbrandsdóttir, Bryndís Eva Ágústsdóttir, Sara María Guðmundsson, Pamela Ósk Hjaltadóttir, Eva Fanney Matthíasdóttir, Eva Kristinsdóttir, Elva María Jónsdóttir, Auður Bergrún Snorradóttir
Neðsta röð frá vinstri: Björn Breki Halldórsson, Máni Freyr Vigfússon, Óliver Elí Björnsson, Halldór Jóhannsson, Skarphéðinn Egill Þórisson.
Efri röð frá vinstri: Veigar Heiðarsson, Guðjón Frans Halldórsson, Skúli Gunnar Ágústsson, Böðvar Bragi Pálsson, Gunnar Þór Heimisson, Arnar Daði Svavarsson, Hjalti Kristján Hjaltason, Kristján Karl Guðjónsson Miðröð frá vinstri: Fjóla Margrét Viðarsdóttir, Perla Sól Sigurbrandsdóttir, Bryndís Eva Ágústsdóttir, Sara María Guðmundsson, Pamela Ósk Hjaltadóttir, Eva Fanney Matthíasdóttir, Eva Kristinsdóttir, Elva María Jónsdóttir, Auður Bergrún Snorradóttir Neðsta röð frá vinstri: Björn Breki Halldórsson, Máni Freyr Vigfússon, Óliver Elí Björnsson, Halldór Jóhannsson, Skarphéðinn Egill Þórisson.

Landsliðsverkefni

Stærstu landsliðsverkefnin eru Evrópumótin sem fara fram árlega og Heimsmeistaramót kvenna – og karla sem leikin eru annaðhvert ár. 

Valviðmið landsliðshóps

Afreksstjóri velur kylfinga í landsliðshóp með því að nota eftirfarandi viðmiðanir (í engri sérstakri röð)

  • Staða á heimslista
  • Forgjöf
  • Frammistaða í mótum innanlands og erlendis
  • Meðaltal högga á keppnistímabili
  • Persónulegur metnaður og ástundun
  • Hæfni og framfarir
  • Endurgjöf frá þjálfurum afrekskylfinga
  • Eftirsóknarverð persónueinkenni, svo sem vilja og skyldurækni, þrauseigju, sjálfstjórn, líkamlega hreysti, gott viðmót og stuðning við liðsfélaga
NafnKlúbbur
Arnar Daði SvavarssonGKG
Aron Emil GunnarssonGOS
Auður Bergrún SnorradóttirGM
Björn Breki HalldórssonGKG
Bryndís Eva ÁgústsdóttirGA
Böðvar Bragi PálssonGR
Dagbjartur SigurbrandssonGR
Elva María JónsdóttirGK
Eva Fanney MatthíasdóttirGKG
Eva KristinsdóttirGM
Fjóla Margrét ViðarsdóttirGS
Guðjón Frans HalldórssonGKG
Gunnar Þór HeimissonGKG
Gunnlaugur Árni SveinssonGKG
Halldór JóhannssonGK
Hjalti Kristján HjaltasonGM
Hulda Clara GestsdóttirGKG
Kristján Karl GuðjónssonGM
Logi SigurðssonGS
Markús MarelssonGK
Máni Freyr VigfússonGK
Óliver Elí BjörnssonGK
Pamela Ósk HjaltadóttirGM
Perla Sól SigurbrandsdóttirGR
Sara María GuðmundsdóttirGM
Skarphéðinn Egill ÞórissonNK
Skúli Gunnar ÁgústssonGK
Tómas Eiríksson HjaltestedGR
Veigar HeiðarssonGA

Ástríða

Framsækni

Keppnisgleði

Liðsheild

GSÍ skiptir alþjóðlegum áhugamannamótum upp í eftirfarandi 4 flokka.

Áherslur eru endurskoðaðar á ári hverju. 

A flokkur:


GSÍ leggur mikla áherslu á eftirfarandi mót. Þjálfarateymi fylgir með og GSÍ ber kostnað þátttakenda að fullu.

HM liða (World Amateur Team Championship – Eisenhower & Espirito Santo Trophies)

EM liða (European Team Championship)

European Young Masters

Spirit International Championship


B flokkur:


GSÍ leggur áherslu á eftirfarandi mót og veitir umfangsmikinn styrk.  Þáttakendur bera ábyrgð á skráningu og ferðatilhögun og lögð er áhersla að þjálfari veiti góðan stuðning. 

EM einstaklinga (European Individual Amateur Championships)

Opna breska (The Amateur & The Womens Amateur Championships)

Opna breska pilta og stúlkna (Boys Amateur & Girls Amateur)

Opna bandaríska (U.S. Amateur Championship)

Opna bandaríska pilta og stúlkna (U.S. Junior Amateur Championship)

C flokkur: 

 

GSÍ mælir með ákveðnum mótum og veitir minni styrki úr ferðasjóði. Þátttakendur bera ábyrgð á skráningu og ferðatilhögun og þjálfari veitir stuðning eftir bestu getu.

 

D flokkur:

 

GSÍ mælir með ákveðnum mótum en veitir ekki fjárhagslegan stuðning. Þátttakendur bera ábyrgð á skráningu og ferðatilhögun. 

 

Birt með fyrirvara um breytingar.

 

Valviðmið í Evrópu- og Heimsmeistaramót

Afreksstjóri velur lið og einstaklinga til þátttöku með því að nota eftirfarandi viðmiðanir (í engri sérstakri röð)

  • Staða á heimslista áhugamanna
  • Frammistaða í mótum í aðdraganda valsins
  • Frammistaða í mótum innanlands og erlendis
  • Meðaltal högga á keppnistímabili
  • Hæfni kylfings til þess að vera hluti að liði og stuðla að markmiðum liðsins og skila sínu í aðstæðunum.
  • Eftirsóknarverð persónueinkenni, t.d. vilja, skyldurækni, þrauseigju, sjálfstjórn, líkamlega hreysti, gott viðmót og stuðning við liðsfélaga

Þessi listi er leiðbeinandi og ekki tæmandi. Einstaklingar þurfa ekki að vera í landsliðshóp til að vera valdir í landsliðsverkefni.

Áhersla á fræðslu og keppnislíkar æfingar  Tæknileg þjálfun fer fram hjá þjálfurum afrekskylfinga.  

Breytilegar staðsetningar, fer eftir eðli æfingarinnar.

Heilbrigðisteymi samanstendur af fagfólki sem koma að heilbrigðisþáttum og mælingum s.s. læknar, sjúkraþjálfarar, íþróttasálfræðingar, næringafræðingar, íþróttafræðingar og annað fagfólk

Markmið með heilbrigðisteymi er að efla aðgengi afrekskylfinga að þess fagfólki sem mun aðstoða afrekskylfinga við að kanna og greina núverandi líkamlegt og andlegt ásigkomulag sem og tæknilega færni og kunnáttu. Þannig verður mögulegt að þróa áætlun og vinna að því bæta árangur og t.d. fyrirbyggja meiðsli. 

Heilbrigðisteymið mun jafnframt koma að almennri fræðslu fyrir afrekskylfinga

Landsliðskylfingar sem nýta sér þjónustu fagfólks heilbriðgisteymis geta sótt styrk frá GSÍ að hámarki 30.000kr á ári.

EM og HM

Konur, HM 

KeppnisstaðurÁrÁrangurFjöldi þjóðaSigurvegarar
 2023   
Frakkland2022   
Singapúr2020Aflýst  
Írland20183957Bandaríkin
Mexíkó20164355Suður-Kórea
Japan20142950Ástralía
Tyrkland20123653Suður-Kórea
Argentína20104252Suður-Kórea
Ástralía20084148Svíþjóð
Suður-Afríka20063342Suður-Afríka
Púertó Ríkó2004Tóku ekki þátt Svíþjóð
Malasía2002Tóku ekki þátt Ástralía
Þýskaland20003232Frakkland
Chile1998Tóku ekki þátt Bandaríkin
Filippseyjar1996Tóku ekki þátt Suður-Kórea
Frakkland19942429Bandaríkin
Kanada1992Tóku ekki þátt Spánn
Nýja-Sjáland1990Tóku ekki þátt Bandaríkin
Svíþjóð1988Tóku ekki þátt Bandaríkin
Venesúela1986Tóku ekki þátt Spánn
Hong Kong1984Tóku ekki þátt Bandaríkin
Sviss1982Tóku ekki þátt Bandaríkin
Bandaríkin1980Tóku ekki þátt Bandaríkin
Fíjí1978Tóku ekki þátt Ástralía
Portúgal1976Tóku ekki þátt Bandaríkin
Dóminíska lýðveldið1974Tóku ekki þátt Bandaríkin
Argentína1972Tóku ekki þátt Bandaríkin
Spánn1970Tóku ekki þátt Bandaríkin
Ástralía1968Tóku ekki þátt Bandaríkin
Mexíkó1966Tóku ekki þátt Bandaríkin
Frakkland1964Tóku ekki þátt Frakkland

Karlar, HM

KeppnisstaðurÁrÁrangurFjöldi þjóðaSigurvegarar
Dúbaí2023   
Frakkland2022   
Singapúr2020Keppni aflýst  
Írland20183572Spánn
Mexíkó20162471Ástralía
Japan2014Tóku ekki þátt Spánn
Tyrkland20122772Mexíkó
Argentína20101969Danmörk
Ástralía20082965Bandaríkin
Suður-Afríka20063465Holland
Púertó-Ríkó20042765Bandaríkin
Malasía20023962Ástralía
Þýskaland20002059Bandaríkin
Chile1998Tóku ekki þátt Ástralía
Filippseyjar1996Tóku ekki þátt Finnland
Frakkland19943644Bandaríkin
Kanada1992Tóku ekki þátt Nýja-Sjáland
Nýja-Sjáland1990Tóku ekki þátt Svíþjóð
Svíþjóð198839* frávísun39Bretland/Írland
Venesúela1986Tóku ekki þátt Kólumbía
Hong Kong1984Tóku ekki þátt Argentína, Japan
Sviss19822629Argentína
Bandaríkin1980Tóku ekki þátt Bandaríkin
Fijí1978Tóku ekki þátt Bandaríkin
Portúgal1976Tóku ekki þátt Taíwan, Bretland/Írland
Dómíníska lýðveldinu19743233Brasilía, Bandaríkin
Argentína1972Tóku ekki þátt Ástralía
Spánn19703636Mexíkó
Ástralía1968Tóku ekki þátt Bandaríkin, Bretland/Írland
Mexíkó19663032Bretland/Írland
Ítalía19643233Taíwan
Japan1962Tóku ekki þátt Kanada
Bandaríkin1960Tóku ekki þátt Bandaríkin
Skotland19583030Ástralía, Bandaríkin, Bretland

Konur, EM:

 
ÁrSætiFjöldi þjóða
20191920
20181818
20171819
20161620
20151921
20141620
20131719
20111519
20101717
20091618
2008Tóku ekki þátt16
2007Tóku ekki þátt16
20051515
2003Tóku ekki þátt14
20011618
1999Tóku ekki þátt17
1997Tóku ekki þátt16
19951819
19931516

Samskiptaráðgjafi hefur það markmið að auka öryggi í íþrótta- og æskulýðsstarfi barna, ungmenna og fullorðinna. Markmiðið er að allir geti tekið virkan þátt á sínum vettvangi og jafnframt leitað sér aðstoðar eða leitað réttar síns vegna atvika og misgerða sem hafa átt sér stað án þess að óttast afleiðingar. Þjónusta og ráðgjöf samskiptaráðgjafa stendur öllum þeim til boða sem tilheyra skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi á landinu. Til samskiptaráðgjafa er hægt að leita með mál er varða andlegt-, líkamlegt- og kynferðislegt ofbeldi og áreitni, einelti og önnur sambærileg tilvik sem hafa komið upp á vettvangi íþrótta- eða æskulýðsstarfs. Einnig mun samskiptaráðgjafi koma á samræmdum viðbragðsáætlunum á landsvísu í þessum málaflokkum.

Starfi samskiptaráðgjafa sinnir Sigurbjörg Sigurpálsdóttir, klínískur sálfræðingur, með aðsetur í húsnæði Domus Mentis- Geðheilsustöðvar. Hægt er að hafa beint samband við hana og er hún með símatíma alla þriðjudaga kl. 10-11, í síma 839-9100. Utan þess tíma er hægt að hringja í símanúmerið en ekki alltaf öruggt að ná samtali. Einnig er hægt að senda tölvupóst á sigurbjorg@dmg.is sem verður svarað eins fljótt og hægt er.

Eftir samtal eða fyrstu samskipti við samskiptaráðgjafa er boðið upp á viðtal ef málið varðar áreitni, ofbeldi eða einelti. Þá er frekari upplýsinga aflað og í kjölfarið eru næstu skref ákveðin, ávallt í samráði við þann sem leitar til samskiptaráðgjafa. Einnig er hægt að leita eftir ráðgjöf hjá samskiptaráðgjafa, ekki þarf að fara lengra með mál ef viðkomandi kýs það ekki.

Samskiptaráðgjafi er óháður aðili sem getur aðstoðað og leiðbeint einstaklingum sem telja sig hafa verið beittir ofbeldi eða misrétti í íþrótta- eða æskulýðsstarfi. Þjónusta samskiptaráðgjafa er gjaldfrjáls.

Vefsíða samskiptaráðgjafa er www.samskiptaradgjafi.is og mun hún þjóna sem upplýsinga- og fræðslusíða starfsins. Hægt er að setja sig í samband við samskiptaráðgjafa í gegnum síðuna, tilkynna atvik og fá ráðgjöf eða aðrar upplýsingar.

GSÍ fylgir lögum ÍSÍ í lyfjamálum, lyfjaeftirlitsnefnd ÍSÍ sér um framkvæmd lyfjaeftirlits meðal íþróttafólks á Íslandi. Lyfjaeftirlitsnefndin starfar samkvæmt reglum Alþjóða lyfjaeftirlitsstofnunarinnar, WADA. Alþjóðlegt lyfjaeftirlit er framkvæmt í samræmi við Alþjóða lyfjaeftirlitsreglurnar (World Anti Doping Code) og alþjóðlega staðla WADA um lyfjaeftirlit.Gott lyfjaeftirlit er afar mikilvægt – bæði fyrir íþróttamanninn og íþróttina.

Deildu:

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ