Landsliðshópurinn í Þýskalandi.
Auglýsing

Ólafur Björn Loftsson, afreksstjóri Golfsambands Íslands, valdi nýverið landsliðin sem taka þátt á Evrópumótum kvenna, karla, stúlkna og pilta. Evrópumót kvenna fer fram á Spáni og karlaliðið leikur í Póllandi. Stúlknalandsliðið leikur í Svíþjóð og piltalandsliðið í Austurríki.

Öll mótin fara fram á sama tíma eða dagana 9.-13. júlí.

Landsliðshópurinn fór s.l. fimmtudag til Þýskalands þar sem að hópurinn æfði saman við frábærar aðstæður.

Kvenna -, stúlkna og piltalandsliðin leika í efstu deild en karlalandsliðið leikur í 2. deild.

Liðin eru þannig skipuð:

Landsliðshópurinn í Þýskalandi

Efri röð frá vinstri: Ólafur Björn Loftsson, Bjarni Már Ólafsson, Baldur Gunnbjörnsson, Guðrún Jóna Nolan Þorsteinsdóttir, Andrea Bergsdóttir, Anna Júlía Ólafsdóttir, Heiðrún Anna Hlynsdóttir, Perla Sól Sigurbrandsdóttir, Hulda Clara Gestsdóttir, Pamela Ósk Hjaltadóttir, Eva Fanney Matthíasardóttir, Eva Kristinsdóttir, Bryndís Eva Ágústsdóttir, Auður Bergrún Snorradóttir, Fjóla Margrét Viðarsdóttir og Árný Árnadóttir.
Fremri röð frá vinstri: Þorsteinn Hallgrímsson, Logi Sigurðsson, Gunnlaugur Árni Sveinsson, Dagbjartur Sigurbrandsson, Daníel Ísak Steinarsson, Aron Emil Gunnarsson, Tómas Eiríksson Hjaltested, Skúli Gunnar Ágústsson, Markús Marelsson, Arnar Daði Svavarsson, Guðjón Frans Halldórsson, Hjalti Kristján Hjaltason, Veigar Heiðarsson og Birgir Björn Magnússon.

Evrópumót karla 9.-13. júlí í Póllandi 🇵🇱

Nánar um mótið hér:

Aron Emil Gunnarsson, GOS
Dagbjartur Sigurbrandsson, GR
Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG
Daníel Ísak Steinarsson, GK
Logi Sigurðsson, GS
Tómas Eiríksson Hjaltested, GR

Þjálfari: Þorsteinn Hallgrímsson
Sjúkraþjálfari: Bjarni Már Ólafsson

Belgía, Króatía, Tékkland, Grikkland, Ungverjaland, Ísland, Litháen, Pólland, Slóvakía og Slóvenía leika í 2. deild – alls 10 þjóðir.

Evrópumót kvenna 9.-13. júlí á Spáni 🇪🇸

Nánar um mótið hér:

Andrea Bergsdóttir, Hills GC
Anna Júlía Ólafsdóttir, GKG
Guðrún Jóna Nolan Þorsteinsdóttir, East Devon GC
Heiðrún Anna Hlynsdóttir, GOS
Hulda Clara Gestsdóttir, GKG
Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR

Þjálfari: Ólafur Björn Loftsson
Sjúkraþjálfari: Baldur Gunnbjörnsson

Austurríki, Belgía, Tékkland, Danmörk, England, Finnland, Frakkland, Þýskaland, Ísland, Írland, Ítalía, Holland, Skotland, Slóvakía, Slóvenía , Spánn, Svíþjóð, Sviss og Wales taka þátt – alls 19 þjóðir.

Evrópumót pilta 9.-13. júlí í Austurríki 🇦🇹

Nánar um mótið hér:

Arnar Daði Svavarsson, GKG
Guðjón Frans Halldórsson, GKG
Hjalti Kristján Hjaltason, GM
Markús Marelsson, GK
Skúli Gunnar Ágústsson, GK
Veigar Heiðarsson, GA

Þjálfari: Birgir Björn Magnússon
Sjúkraþjálfari: Gísli Vilhjálmur Konráðsson

Austurríki, Tékkland, Danmörk, England, Finnland, Frakkland, Þýskaland, Ísland, Írland, Ítalía, Holland, Noregur, Spánn, Svíþjóð, Sviss og Wales taka þátt – alls 16 þjóðir.

Evrópumót stúlkna 9.-13. júlí í Svíþjóð 🇸🇪

Nánar um mótið hér:

Auður Bergrún Snorradóttir, GM
Bryndís Eva Ágústsdóttir, GA
Eva Fanney Matthíasdóttir, GKG
Eva Kristinsdóttir, GM
Fjóla Margrét Viðarsdóttir, GS
Pamela Ósk Hjaltadóttir, GM

Þjálfari: Guðrún Brá Björgvinsdóttir
Sjúkraþjálfari: Árný Lilja Árnadóttir

Austurríki, Belgía, Tékkland, Danmörk, England, Eistland, Finnland, Frakkland, Þýskaland, Ísland, Írland, Ítalía, Holland, Pólland, Skotland, Spánn, Svíþjóð, Sviss og Tyrkland taka þátt – alls 19 þjóðir.

European Young Masters í Slóvakíu 25.-27. júlí 🇸🇰

Arnar Daði Svavarsson, GKG
Eva Fanney Matthíasdóttir, GKG
Gunnar Þór Heimisson, GKG
Pamela Ósk Hjaltadóttir, GM

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ