Jussi Pitkanen, afreksstjóri GSÍ, hefur valið þá leikmenn sem skipa landsliðshópa eldri og yngri kylfinga á árinu 2018. Atvinnukylfingar eru ekki í landsliðshóp Íslands þar sem landsliðin keppa á EM og HM áhugamanna. Alls eru 29 kylfingar í hópnum.
Landsliðshópurinn gæti breyst á tímabilinu og fer það eftir árangri og frammistöðu leikmanna sem eru í núverandi hóp og þeirra sem voru ekki valdir að þessu sinni.
Frammistaða leikmanna í landsliðshópnum verður metin með reglulegu millibili þar sem ýmsir þættir verða lagðir til grundvallar. Þar má nefna frammistöðu og framfarir á undanförnum tímabilum. Einnig eru framtíðaráform og markmið leikmanna sem ætla sér í fremstu röð í golfíþróttinni höfð til hliðsjónar
Leikmenn sem skipa yngri landsliðshóp GSÍ fá stuðning og leiðsögn frá kylfingum sem eru í Forskot afrekssjóði. Nánar verður greint frá þeirri tilhögun síðar.
Landsliðshópur Íslands er þannig skipaður:
Konur:
Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK
Saga Traustadóttir, GR
Ragnhildur Kristinsdóttir, GR
Berglind Björnsdóttir, GR
Helga Kristín Einarsdóttir, GK.
Karlar:
Gísli Sveinbergsson, GK
Bjarki Pétursson, GB
Aron Snær Júlíusson, GKG
Fannar Ingi Steingrímsson, GHG
Rúnar Arnórsson, GK
Ragnar Már Garðarsson, GKG
Henning Darri Þórðarson, GK
Vikar Jónasson, GK
Hlynur Bergsson, GKG
Yngri landsliðshópur Íslands er þannig skipaður:
14 ára og yngri:
Böðvar Bragi Pálsson, GR
Eva María Gestsdóttir, GKG
Kinga Korpak, GS
15-16 ára:
Sigurður Bjarki Blumenstein, GR
Dagbjartur Sigurbrandsson, GR
Sigurður Arnar Garðarsson, GKG
Hulda Clara Gestsdóttir, GKG
Andrea Ýr Ásmundsdóttir, GA
Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, GR
17-18 ára:
Ingvar Andri Magnússon, GR
Viktor Ingi Magnússon, GR
Daníel Ísak Steinarsson, GK
Ragnar Már Ríkharðsson, GM
Andrea Björg Bergsdóttir, GKG
Amanda Guðrún Bjarnadóttir, GHD
Alls eru 14 leikmenn í landsliðshóp karla og kvenna, níu karlar og fimm konur.
Karlar:
Gísli Sveinbergsson, GK
Bjarki Pétursson, GB
Aron Snær Júlíusson, GKG
Fannar Ingi Steingrímsson, GHG
Rúnar Arnórsson, GK
Ragnar Már Garðarsson, GKG
Henning Darri Þórðarson, GK
Vikar Jónasson, GK
Hlynur Bergsson, GKG
Konur:
Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK
Saga Traustadóttir, GR
Ragnhildur Kristinsdóttir, GR
Berglind Björnsdóttir, GR
Helga Kristín Einarsdóttir, GK
Landsliðshópurinn kemur frá samtals 5 golfklúbbum. Flestir þeirra eða sex leikmenn alls eru frá Golfklúbbnum Keili, þrír úr Golfklúbbi Reykjavíkur, tveir úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, einn er frá Golfklúbbi Hveragerðis og einn er frá Golfklúbbi Borgarness.
Unglingalandsliðshópar:
Alls eru 15 leikmenn í yngri landsliðshópnum, átta piltar og sjö stúlkur.
14 ára og yngri:
Böðvar Bragi Pálsson, GR
Eva María Gestsdóttir, GKG
Kinga Korpak, GS
15-16 ára:
Sigurður Bjarki Blumenstein, GR
Dagbjartur Sigurbrandsson, GR
Sigurður Arnar Garðarsson, GKG
Hulda Clara Gestsdóttir, GKG
Andrea Ýr Ásmundsdóttir, GA
Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, GR
17-18 ára:
Ingvar Andri Magnússon, GR
Viktor Ingi Einarsson, GR
Daníel Ísak Steinarsson, GK
Ragnar Már Ríkharðsson, GM
Andrea Björg Bergsdóttir, GKG
Amanda Guðrún Bjarnadóttir, GHD
Leikmennirnir koma frá sjö klúbbum. Alls eru sex leikmenn frá Golfklúbbi Reykjavíkur, fjórir koma frá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, Golfklúbbur Suðurnesja, Golfklúbbur Mosfellsbæjar, Golfklúbburinn Keilir, Golfklúbburinn Hamar Dalvík og Golfklúbbur Akureyrar eiga einn fulltrúa hver í þessum landsliðshóp.