Úlfar Jónsson landsliðsþjálfari hefur valið þá kylfinga sem keppa fyrir Íslands hönd í þeim verkefnum sem framundan eru.
Landslið karla tekur þátt í Evrópukeppni karlalandsliða sem fram fer í Finnlandi 8. -12. júlí n.k.
Íslenska landsliðið tryggði sér rétt til þátttöku á Evrópumótinu þegar það náði 2. sæti í undankeppni fyrir Evrópumót landsliða í Tékklandi á síðasta ári. Einungis 16 sterkustu lið Evrópu hafa þátttöku rétt í mótinu.
Keppt verður á Linna golfvellinum sem er staðsettur um 100 km frá Helsinki rétt utan við bæinn, Hameenlinna.
Karlalandsliðið:
Andri Þór Björnsson, Golfklúbbi Reykjavíkur Bjarki Pétursson, Golfklúbbi Borgarness Gísli Sveinbergsson, Golfklúbbnum Keili Guðmundur Ágúst Kristjánsson, Golfklúbbi Reykjavíkur Haraldur Franklin Magnús, Golfklúbbi Reykjavíkur Ragnar Már Garðarsson, Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar Hægt er að nálgast ítarlegar upplýsingar um mótið á heimasíðu þess; www.eatc2014.fiLandslið kvenna tekur þátt í Evrópukeppni kvennalandsliða sem fram fer í Ljubliana í Slóveniu 8.-12. júlí n.k.
Keppt verður á Golf & Country Club Diners Ljubjana og taka 20 lið þátt í mótinu. Diners GC völlurinn er 5.338 metrar af bláum teigum par 72. Nánari upplýsingar um völlinn er hægt að finna á heimasíðu klúbbsins, www.golf-ljubjana.si. Upplýsingar um mótið sjálft, þátttökuþjóðir o.fl. er að finna á heimasíðu EGA, https://ega-golf.ch/040000/040103.asp.
Kvennalandsliðið verður skipað eftirtöldum kylfingum:
Berglind Björnsdóttir Golfklúbbi Reykjavíkur Guðrún Brá Björgvinsdóttir Golfklúbbnum Keili Ólafía Þórunn Kristinsdóttir Golfklúbbi Reykjavíkur Ragnhildur Kristinsdóttir Golfklúbbi Reykjavíkur Signý Arnórsdóttir Golfklúbbnum Keili Sunna Víðisdóttir Golfklúbbi Reykjavíkur
Piltalandsliðið heldur til Noregs og tekur þátt í Evrópukeppni pilta, en liðið tryggði sér rétt til þátttöku í mótinu þegar það náði 3. sæti í undankeppni Evrópumótsins 2013 sem fram fór í Slóvakíu.
Evrópukeppni pilta er leikið á Bogstad vellinum í Osló, en sá völlur er elsti og einn þekktasti völlur Noregs, 6.340 metra langur par 72. Upplýsingar um völlinn er hægt að finna á heimasíðu klúbbsins www.oslogk.no og nánari upplýsingar um mótið á heimasíðu EGA, https://ega-golf.ch/040000/040103.asp.
Piltalandsliðið er skipað eftirtöldum kylfingum:
Aron Snær Júlíusson Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar Birgir Björn Magnússon Golfklúbbnum Keili Egill Ragnar Gunnarsson Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar Fannar Ingi Steingrímsson Golfklúbbi Hveragerðis Henning Darri Þórðarsson Golfklúbbnum Keili Kristófer Orri Þórðarson Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar