/

Deildu:

Úlfar Jónsson landsliðsþjálfari.
Auglýsing

Úlfar Jónsson landsliðsþjálfari hefur valið þá kylfinga sem keppa fyrir Íslands hönd í þeim verkefnum sem framundan eru.

 Landslið karla tekur þátt í Evrópukeppni karlalandsliða sem fram fer í Finnlandi 8. -12. júlí n.k. 

Íslenska landsliðið tryggði sér rétt til þátttöku á Evrópumótinu þegar það náði 2. sæti í undankeppni fyrir Evrópumót landsliða í Tékklandi á síðasta ári. Einungis 16 sterkustu lið Evrópu hafa þátttöku rétt í mótinu.

Keppt verður á Linna golfvellinum sem er staðsettur um 100 km frá Helsinki rétt utan við bæinn, Hameenlinna.

 Karlalandsliðið:

Andri Þór Björnsson, Golfklúbbi Reykjavíkur
Bjarki Pétursson, Golfklúbbi Borgarness
Gísli Sveinbergsson, Golfklúbbnum Keili
Guðmundur Ágúst Kristjánsson, Golfklúbbi Reykjavíkur
Haraldur Franklin Magnús, Golfklúbbi Reykjavíkur
Ragnar Már Garðarsson, Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar
Hægt er að nálgast ítarlegar upplýsingar um mótið á heimasíðu þess; www.eatc2014.fi

Landslið kvenna tekur þátt í Evrópukeppni kvennalandsliða sem fram fer í Ljubliana í Slóveniu 8.-12. júlí n.k. 

Keppt verður á Golf & Country Club Diners Ljubjana og taka 20 lið þátt í mótinu. Diners GC völlurinn er 5.338 metrar af bláum teigum par 72. Nánari upplýsingar um völlinn er hægt að finna á heimasíðu klúbbsins, www.golf-ljubjana.si. Upplýsingar um mótið sjálft, þátttökuþjóðir o.fl. er að finna á heimasíðu EGA, https://ega-golf.ch/040000/040103.asp.

 Kvennalandsliðið verður skipað eftirtöldum kylfingum:

Berglind Björnsdóttir Golfklúbbi Reykjavíkur
Guðrún Brá Björgvinsdóttir Golfklúbbnum Keili
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir Golfklúbbi Reykjavíkur
Ragnhildur Kristinsdóttir Golfklúbbi Reykjavíkur 
Signý Arnórsdóttir Golfklúbbnum Keili
Sunna Víðisdóttir Golfklúbbi Reykjavíkur

 

Piltalandsliðið heldur til Noregs og tekur þátt í Evrópukeppni pilta, en liðið tryggði sér rétt til þátttöku í mótinu þegar það náði 3. sæti í undankeppni Evrópumótsins 2013 sem fram fór í Slóvakíu.

Evrópukeppni pilta er leikið á Bogstad vellinum í Osló, en sá völlur er elsti og einn þekktasti völlur Noregs, 6.340 metra langur par 72. Upplýsingar um völlinn er hægt að finna á heimasíðu klúbbsins www.oslogk.no og nánari upplýsingar um mótið á heimasíðu EGA, https://ega-golf.ch/040000/040103.asp.

 Piltalandsliðið er skipað eftirtöldum kylfingum:

Aron Snær Júlíusson Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar
Birgir Björn Magnússon Golfklúbbnum Keili
Egill Ragnar Gunnarsson Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar
Fannar Ingi Steingrímsson Golfklúbbi Hveragerðis
Henning Darri Þórðarsson Golfklúbbnum Keili
Kristófer Orri Þórðarson Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ