Auglýsing

Landssamtök eldri kylfinga á Íslandi, LEK, standa að fjölmennu alþjóðlegu golfmóti á Íslandi dagana 31. júlí – 2. ágúst.

Keppendur eru 55 ára og eldri, 240 alls, og er keppt í karlaflokki.

Um 330 gestir koma til landsins í tilefni mótsins.

Það eru LEK og European Senior Golf Association, ESGA, sem standa að mótinu.

Forsvarsmenn ESGA og forsetar golfsambanda frá ýmsum þátttökuþjóðum verða á keppnisstöðunum á meðan mótið fer fram.

Keppt er á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar, og á Korpúlfsstaðavelli hjá Golfklúbbi Reykjavíkur.

Alls eru 20 þjóðir sem taka þátt, og er keppt í höggleik án forgjafar og höggleik með forgjöf.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit á Hlíðarvelli í Mosfellsbæ – punktakeppni.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit á Korpúlfsstaðavelli í Reykjavík – höggleikur.

Smelltu hér fyrir myndasafn:

Lið Íslands í keppni með forgjöf, Mosfellsbær.

Kjartan Jóhannes Einarsson, Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar, forgjöf 6,5
Gauti Grétarsson, Nesklúbburinn, forgjöf 1,9
Ingvar Kristinsson, Golfklúbburinn Keilir, forgjöf 10,3
Páll Poulsen, Golfklúbburinn Keilir, forgjöf 11,8
Iouri Zinoviev, Golfklúbbur Reykjavíkur, forgjöf 13,6
Þórhallur Óskarsson, Golfklúbbur Sandgerðis, forgjöf 5,9

Lið Íslands í höggleikskeppninni, Reykjavík:

Guðmundur Arason, Golfklúbbur Reykjavíkur, forgjöf 2,8
Halldór Ásgrímur Ingólfsson Golfklúbburinn Keilir, forgjöf 2,8
Ólafur Hreinn Jóhannesson, Golfklúbburinn Setberg, forgjöf 3,5
Hjalti Pálmason, Golfklúbbur Mosfellsbæjar, forgjöf +0,7
Guðmundur Sigurjónsson, Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar, forgjöf 1,8
Tryggvi Valtýr Traustason, Golfklúbburinn Setberg, forgjöf 0,0

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ