Í meðfylgjandi skjölum er útreikningur á stigum sem telja til landsliða karla og kvenna þegar eitt mót er eftir hjá LEK.
Útreikningurinn byggir 6 bestu mótum hvers einstaklings á Öldungamótaröðinni eins og nefnt hefur verið áður.
Búið er að taka út þá keppendur sem ekki eru gjaldgengir í landslið eldri kylfinga eins og þá sem nota golfbíla eða teljast atvinnumenn í íþróttinni.
Listarnir gefa því góða mynd af stöðunni fyrir lokamótið og margir eiga enn möguleika á að komast í landslið eldri kylfinga.
Stjórn LEK hvetur kylfinga til að fjölmenna í Grafarholt 17. september þar sem úrslit munu ráðast.
Stigatafla karlar 55+ með forgjöf 2017.
Stigatafla karlar 70+ án forgjafar_2017.
Stigatafla karlar 70+ með forgjöf 2017.