Áhugamennskunefnd G.S.Í. hefur ákveðið að hámarksverðmæti verðlauna í golfmótum skuli árið 2017 vera kr. 70.000 .
Verðmæti ferðavinninga má þó vera allt að kr. 140.000.
Eins og endranær er miðað er við smásöluverðmæti vinnings.
Eftirtaldar reglur gilda einnig um verðlaunafé:
- Ekki má veita viðtöku verðlaunum, sem eru greidd út í peningum eða ávísun á peninga.
- Vinni keppandi til fleiri en einna verðlauna í sama móti (eða mótasamfellu) má samanlagt verðmæti þeirra ekki vera umfram kr. 70.000. Þetta tekur einnig til aukaverðlauna svo sem fyrir lengsta upphafshögg og högg næst holu.
- Ekkert hámark gildir um verðlaun fyrir að fara holu í höggi. Þau mega auk þess koma að fullu til viðbótar sérhverjum öðrum verðlaunum í sama móti.
Skipuleggjendum og bakhjörlum golfmóta er bent á að hafa fyrirfram samband við nefndina eða skrifstofu GSÍ ef vafi leikur á, hvort fyrirhuguð verðlaun eru í samræmi við gildandi reglur
Þær upphæðir, sem tilgreinar eru í bréfi þessu, gilda til loka árs 2017.
Með óskum um gleðilegt golfsumar.
Áhugamennskunefnd GSÍ.
Gísli Guðni Hall, formaður / ggh@law.is
Guðmundur Friðrik Sigurðsson
Hafdís Helgadóttir