Logi Sigurðsson, GS, er Íslandsmeistari í holukeppni karla 2024 en hann sigraði Jóhannes Guðmundsson, GR, 3&2 í úrslitaleiknum sem fram fór í dag á Garðavelli á Akranesi.
Kristján Þór Einarsson, GM, varð þriðji en hann sigraði Jóhann Frank Halldórsson, GR, á lokaholunni í leiknum um bronsverðlaunin.
Úrslitaleikurinn, þar sem að Logi og Jóhannes Guðmundsson, GR, mættust var jafn þar sem að þeir skiptust á að vinna holur. Jóhannes var 2 holur upp eftir 7 holur. Logi vann næstu þrjár holur og komst yfir í fyrsta sinn í leiknum á 10. holu. Logi vann 13. og 14., og tryggði síðan 3&2 sigur á 16. flötinni.
„Mér líður vel og þetta mót var mjög skemmtilegt. Aðstæður voru krefjandi en Garðavöllur er í góðu standi. Mér tókst að halda einbeitingu og slá eitt í högg í einu. Það er í raun það eina sem maður getur gert þegar við erum að leika 36 holur á dag, þrjá daga í röð,“ sagði Logi við golf.is eftir sigurinn í dag.
Þetta er í fyrsta sinn sem Logi fagnar þessum titli en hann sigraði á Íslandsmótinu í golfi í fyrra – og er hann því handhafi tveggja stærstu titlana í karlaflokki á GSÍ mótaröðinni. Íslandsmótið í golfi þar sem að keppt er í höggleik fer fram dagana 18.-21. júlí á heimavelli Loga, Hólmsvelli í Leiru.
Í fyrri hluta Íslandsmótsins í holukeppni, sem fram fór laugardaginn 22. júní var leikinn 36 holu höggleikur án forgjafar, þar sem sextán efstu keppendurnir komust áfram í útsláttarkeppnina. Logi endaði í 7. sæti í þeirri keppni.
Birgir Björn Magnússon, GK, lék gegn Loga í 16-manna úrslitum þar sem Logi hafði betur 3&1.
Í 8-manna úrslitum var Daníel Ingi Sigurjónsson, GV, mótherji Loga þar sem að GS-ingurinn sigraði 2&1.
Í undanúrslitum mættust Logi og Jóhann Frank Halldórsson, þar sem að Logi sigraði 3&2.
Alls hafa 26 leikmenn fagnað þessum titli í karlaflokki frá árinu 1988 þegar Íslandsmótið í holukeppni fór fyrst fram.
Birgir Leifur Hafþórsson er sigursælastur með alls fjóra titla 1994, 1996, 2004 og 2010. Björgvin Sigurbergsson er með þrjá titla, 1992, 1998 og 200.
Sex leikmenn hafa sigrað tvívegis, Úlfar Jónsson (1988 og 1993), Haraldur Heimisson (2001 og 2003), Ottó Sigurðsson (2005 og 2007), Kristján Þór Einarsson (2009 og 2014), Axel Bóasson (2015 og 2020) og Rúnar Arnórsson (2019 og 2020). Rúnar er sá eini sem hefur náð að verja titilinn í karlaflokki í þau 36 skipti sem mótið hefur farið fram.
Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit í holukeppninni:
Í undanúrslitum mættust:
Jóhannes Guðmundsson, GR – Kristján Þór Einarsson, GM. Jóhannes sigraði 2&1,.
Logi Sigurðsson, GS – Jóhann Frank Halldórsson, GR. Logi sigraði 3&2.
Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit í holukeppninni:
2. umferð fór fram eftir hádegi sunnudaginn 23 júní, 8 manna úrslit.
Jóhannes Guðmundsson, GR sigraði Tómas Eiríksson Hjaltested, GR 2/0.
Eins og sjá má á skorkortinu léku þeir GR-félagar frábært golf. Jóhannes fékk sjö fugla en Tómas fékk fjóra fugla og örn (-2) á erfiðustu holu vallarins.
Kristján Þór Einarsson, GM sigraði Hjalta Hlíðberg Jónasson, GKG 1/0. Leikurinn var mjög jafn og réðust úrslitina á síðustu holunni. Kristján Þór setti þar niður langt pútt fyrir pari eftir að hafa slegið úr glompu eftir upphafshöggið. Hjalti var á flötinni eftir upphafshöggið á 18. sem er par 3 hola en hann þrípúttaði og Kristján landaði 1/0 sigri. Kristján hefur tvívegis sigrað á Íslandsmótinu í holukeppni, fyrst árið 2009 og í annað sinn árið 2014.
Logi Sigurðsson, GS sigraði Daníel Ingi Sigurjónsson, GV 2&1. Logi komst yfir í leiknum á 6. holu og var alltaf með yfirhöndina eftir það. Hann var 2 holur upp eftir 11. brautina og sá munur hélst allt fram á 17. holu.
Jóhann Frank Halldórsson, GR sigraði Einar Bjarna Helgaason, GSE 1/0. Leikurinn var mjög jafn og var Einar Bjarni 1 holu upp eftir 9 holur. Jóhann Frank jafnaði metin á 10. og komst eina holu yfir á 12. holu. Einar Bjarni jafnaði með fugli á 16. en Jóhann Frank tryggði sigurinn með pari á lokaholunni þar sem Einar Bjarni tapaði höggi og fékk skolla.
1. umferð fór fram fyrir hádegi sunnudaginn 23. júní, 16 manna úrslit.
(1.) Björn Viktor Viktorsson, GR – Jóhannes Guðmundsson, GR (16.)
Jóhannes Guðmundsson sigraði 2&1 og leikur í 8-manna úrslitum gegn Tómasi Eiríkssyni Hjaltested.
(2) Hákon Örn Magnússon, GR – Daníel Ingi Sigurjónsson, GV (15.)
Daníel Ingi Sigurjónsson sigraði 2&1 og leikur í 8-manna úrslitum gegn Loga Sigurðssyni.
(3.) Sigurður Bjarki Blumenstein, GR – Jóhann Frank Halldórsson, GR (14.)
Jóhann Frank Halldórsson sigraði 3&1 og leikur í 8-manna úrslitum Einari Bjarna Helgasyni.
(4.) Kristján Þór Einarsson, GM – Kristófer Karl Karlsson, GM (13.)
Kristján Þór Einarsson sigraði á 19. holu í bráðabana og leikur í 8-manna úrslitum gegn Hjalta Hlíðberg Jónassyni.
(5.) Kristófer Orri Þórðarson, GKG – Hjalti Hlíðberg Jónasson, GKG (12.)
Hjalti Hlíðberg Jónasson sigraði 6&5 og leikur í 8-manna úrslitum gegn Kristjáni Þór Einarssyni.
(6.) Böðvar Bragi Pálsson, GR – Einar Bjarni Helgason, GSE (11.)
Einar Bjarni Helgason sigraði 4&3 og leikur í 8-manna úrslitum gegn Jóhanni Frank Halldórssyni.
(7.) Logi Sigurðsson, GS – Birgir Björn Magnússon, GK (10.)
Logi Sigurðsson sigraði 3&1 og leikur í 8-manna úrslitum gegn Daníel Inga Sigurjónssyni.
(8.) Guðjón Frans Halldórsson, GKG – Tómas Eiríksson Hjaltested, GR (9.)
Tómas Eiríksson Hjaltested sigraði 3&2 og keppir í 8. manna úrslitum gegn Jóhannesi Guðmundssyni.
Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit í höggleiknum:
Úrslitin í höggleiknum eru hér fyrir neðan:
Alls léku átta leikmenn í bráðabana um sjö laus sæti í 16. manna úrslitum en þeir voru allir jafnir í 10. sæti á einu höggi yfir pari samtals.
Fyrsta holan í bráðabananum var 10. brautin á Garðavelli þar sem að fimm leikmenn tryggðu sér sæti með því að fá fugl eða par. Einar Helgi Bjarnason og Birgir Björn Magnússon, fengu fugl, Hjalti Hlíðberg Jónasson, Kristófer Karl Karlsson og Jóhann Frank Halldórsson fengu allir par.
Jóhannes Guðmundsson, Lárus Ingi Antonsson og Daníel Ingi Sigurjónsson fengu allir skolla á 10. brautina fóru þeir næst á holu 13. holu.
Þar fékk Daníel Ingi fugl og tryggði sig áfram en Jóhannes og Lárus Ingi fengu báðir par.
Jóhannes og Lárus Ingi léku 18. brautina næst þar sem þeir fengu báðir par.
Úrslitin réðust síðan á fjórðu holu bráðabanans á 10. braut þar sem að Jóhannes Guðmundsson fékk fugl og tryggði sér síðasta sætið í 16-manna úrslitum en Lárus Ingi féll úr leik.
Að höggleik loknum eru leiknar fjórar umferðir í holukeppni.
Smelltu hér fyrir myndasafn:
Keppendur eru alls 72 og koma þeir frá 11 mismunandi klúbbum. Flestir keppendur eru frá Golfklúbbi Reykjavíkur, eða 19 alls. Golfklúbbur Mosfellsbæjar er með 12 og Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar er með 8 keppendur.
Í keppendahópnum eru fjórir fyrrum sigurvegarar á Íslandsmótinu í holukeppni. Aron Snær Júlíusson, GKG, mætir í titilvörnina, Kristján Þór Einarsson, GM hefur tvívegis sigrað (2009 og 2014), Sigurður Bjarki Blumenstein, GR sigraði árið 2022 og Jón Karlsson, GR sem sigraði árið 1991 eða fyrir 33 árum.
Klúbbur | Fjöldi | Hlutfall | |
1 | Golfklúbbur Reykjavíkur | 19 | 26% |
2 | Golfklúbbur Mosfellsbæjar | 12 | 16% |
3 | Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar | 9 | 12% |
4 | Golfklúbburinn Keilir | 6 | 8% |
5 | Golfklúbbur Akureyrar | 5 | 7% |
6 | Golfklúbbur Selfoss | 5 | 7% |
7 | Golfklúbbur Suðurnesja | 5 | 7% |
8 | Golfklúbburinn Leynir | 4 | 5% |
9 | Nesklúbburinn | 4 | 5% |
10 | Golfklúbbur Vestmannaeyja | 2 | 3% |
11 | Golfklúbburinn Setberg | 2 | 3% |
Meðalforgjöfin í mótinu er +0.3 og meðaldur keppenda er 24,3 ár. Elsti keppandinn er 55 ára og sá yngsti er 14 ára.
Keppendur á Íslandsmótinu í holukeppni 2024 í karlaflokki, raðað eftir forgjöf, lægsta til hæsta.
Nafn | Aldur | Klúbbur | Forgjöf |
Logi Sigurðsson | 22 | Golfklúbbur Suðurnesja | +4.5 |
Kristján Þór Einarsson | 36 | Golfklúbbur Mosfellsbæjar | +4.0 |
Aron Snær Júlíusson | 28 | Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar | +3.9 |
Aron Emil Gunnarsson | 23 | Golfklúbbur Selfoss | +3.9 |
Sigurður Bjarki Blumenstein | 23 | Golfklúbbur Reykjavíkur | +3.5 |
Daníel Ingi Sigurjónsson | 26 | Golfklúbbur Vestmannaeyja | +3.4 |
Ingi Þór Ólafson | 23 | Golfklúbbur Mosfellsbæjar | +3.4 |
Böðvar Bragi Pálsson | 21 | Golfklúbbur Reykjavíkur | +3.4 |
Kristófer Orri Þórðarson | 27 | Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar | +3.3 |
Daníel Ísak Steinarsson | 24 | Golfklúbburinn Keilir | +3.3 |
Veigar Heiðarsson | 18 | Golfklúbbur Akureyrar | +3.3 |
Tómas Eiríksson Hjaltested | 22 | Golfklúbbur Reykjavíkur | +3.2 |
Birgir Björn Magnússon | 27 | Golfklúbburinn Keilir | +2.9 |
Hákon Örn Magnússon | 26 | Golfklúbbur Reykjavíkur | +2.6 |
Kristófer Karl Karlsson | 23 | Golfklúbbur Mosfellsbæjar | +2.1 |
Jóhannes Guðmundsson | 26 | Golfklúbbur Reykjavíkur | +1.9 |
Svanberg Addi Stefánsson | 22 | Golfklúbburinn Keilir | +1.8 |
Björn Óskar Guðjónsson | 27 | Golfklúbbur Mosfellsbæjar | +1.5 |
Hjalti Hlíðberg Jónasson | 22 | Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar | +1.5 |
Guðjón Frans Halldórsson | 17 | Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar | +1.5 |
Einar Bjarni Helgason | 26 | Golfklúbburinn Setberg | +1.4 |
Pétur Sigurdór Pálsson | 22 | Golfklúbbur Selfoss | +1.4 |
Andri Már Óskarsson | 33 | Golfklúbbur Selfoss | +1.3 |
Sveinn Andri Sigurpálsson | 21 | Golfklúbbur Suðurnesja | +1.2 |
Róbert Leó Arnórsson | 20 | Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar | +1.2 |
Björn Viktor Viktorsson | 21 | Golfklúbbur Reykjavíkur | +1.1 |
Ólafur Marel Árnason | 22 | Nesklúbburinn | +1.0 |
Arnór Tjörvi Þórsson | 22 | Golfklúbbur Reykjavíkur | +0.8 |
Hjalti Pálmason | 55 | Golfklúbbur Mosfellsbæjar | +0.7 |
Elvar Már Kristinsson | 24 | Golfklúbbur Reykjavíkur | +0.7 |
Jóhann Frank Halldórsson | 20 | Golfklúbbur Reykjavíkur | +0.6 |
Guðmundur Rúnar Hallgrímsson | 49 | Golfklúbbur Suðurnesja | +0.5 |
Pétur Þór Jaidee | 35 | Golfklúbbur Suðurnesja | +0.4 |
Breki Gunnarsson Arndal | 21 | Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar | +0.4 |
Dagur Fannar Ólafsson | 20 | Golfklúbbur Reykjavíkur | +0.1 |
Atli Már Grétarsson | 26 | Golfklúbburinn Setberg | 0.0 |
Jón Karlsson | 55 | Golfklúbbur Reykjavíkur | 0.1 |
Lárus Garðar Long | 25 | Golfklúbbur Vestmannaeyja | 0.1 |
Sigurþór Jónsson | 43 | Golfklúbburinn Keilir | 0.2 |
Andri Már Guðmundsson | 23 | Golfklúbbur Mosfellsbæjar | 0.2 |
Bjarni Freyr Valgeirsson | 23 | Golfklúbbur Reykjavíkur | 0.2 |
Arnór Daði Rafnsson | 22 | Golfklúbbur Mosfellsbæjar | 0.2 |
Lárus Ingi Antonsson | 22 | Golfklúbbur Akureyrar | 0.3 |
Heiðar Snær Bjarnason | 20 | Golfklúbbur Selfoss | 0.3 |
Óskar Páll Valsson | 20 | Golfklúbbur Akureyrar | 0.3 |
Páll Birkir Reynisson | 24 | Golfklúbbur Reykjavíkur | 0.8 |
Bjarki Snær Halldórsson | 22 | Golfklúbburinn Keilir | 0.8 |
Víðir Steinar Tómasson | 27 | Golfklúbbur Akureyrar | 0.9 |
Bragi Arnarson | 27 | Golfklúbbur Reykjavíkur | 1.0 |
Mikael Máni Sigurðsson | 21 | Golfklúbbur Akureyrar | 1.0 |
Róbert Karl Segatta | 26 | Golfklúbburinn Keilir | 1.1 |
Ragnar Már Ríkarðsson | 24 | Golfklúbbur Mosfellsbæjar | 1.1 |
Birkir Blær Gíslason | 21 | Nesklúbburinn | 1.1 |
Máni Páll Eiríksson | 23 | Golfklúbbur Selfoss | 1.2 |
Tristan Freyr Traustason | 18 | Golfklúbburinn Leynir | 1.2 |
Róbert Smári Jónsson | 26 | Golfklúbbur Suðurnesja | 1.3 |
Arnór Már Atlason | 20 | Golfklúbbur Reykjavíkur | 1.4 |
Heiðar Steinn Gíslason | 18 | Nesklúbburinn | 1.4 |
Jón Eysteinsson | 18 | Golfklúbbur Reykjavíkur | 1.7 |
Halldór Viðar Gunnarsson | 19 | Golfklúbbur Reykjavíkur | 1.9 |
Guðmundur Snær Elíasson | 18 | Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar | 2.0 |
Jóhannes Sturluson | 20 | Golfklúbbur Reykjavíkur | 2.2 |
Kristian Óskar Sveinbjörnsson | 20 | Golfklúbbur Mosfellsbæjar | 2.3 |
Birkir Þór Baldursson | 27 | Golfklúbburinn Leynir | 2.5 |
Kári Kristvinsson | 19 | Golfklúbburinn Leynir | 2.5 |
Þorsteinn Brimar Þorsteinsson | 20 | Golfklúbbur Reykjavíkur | 2.7 |
Hjalti Kristján Hjaltason | 14 | Golfklúbbur Mosfellsbæjar | 2.8 |
Stefán Þór Hallgrímsson | 37 | Golfklúbbur Mosfellsbæjar | 2.9 |
Orri Snær Jónsson | 23 | Nesklúbburinn | 3.0 |
Guðlaugur Þór Þórðarson | 16 | Golfklúbburinn Leynir | 3.6 |
Aron Ingi Hákonarson | 21 | Golfklúbbur Mosfellsbæjar | 4.0 |
Tryggvi Jónsson | 16 | Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar | 5.2 |
Alls hafa 26 leikmenn fagnað þessum titli í karlaflokki frá árinu 1988 þegar Íslandsmótið í holukeppni fór fyrst fram.
Birgir Leifur Hafþórsson er sigursælastur með alls fjóra titla 1994, 1996, 2004 og 2010. Björgvin Sigurbergsson er með þrjá titla, 1992, 1998 og 200.
Sex leikmenn hafa sigrað tvívegis, Úlfar Jónsson (1988 og 1993), Haraldur Heimisson (2001 og 2003), Ottó Sigurðsson (2005 og 2007), Kristján Þór Einarsson (2009 og 2014), Axel Bóasson (2015 og 2020) og Rúnar Arnórsson (2019 og 2020). Rúnar er sá eini sem hefur náð að verja titilinn í karlaflokki í þau 36 skipti sem mótið hefur farið fram.
Ár | Nafn | Klúbbur | Fjöldi titla | Staðsetning |
1988 | Úlfar Jónsson | GK | 1 | Hólmsvöllur, GS |
1989 | Sigurður Pétursson | GR | 1 | Grafarholtsvöllur, GR |
1990 | Sigurjón Arnarsson | GR | 1 | Hvaleyrarvöllur, GK |
1991 | Jón Karlsson | GR | 1 | Strandarvöllur, GHR |
1992 | Björgvin Sigurbergsson | GK | 1 | Hólmsvöllur, GS |
1993 | Úlfar Jónsson | GK | 2 | Hvaleyrarvöllur, GK |
1994 | Birgir Leifur Hafþórsson | GL | 1 | Strandarvöllur, GHR |
1995 | Örn Arnarson | GA | 1 | Grafarholtsvöllur, GR |
1996 | Birgir Leifur Hafþórsson | GL | 2 | Hólmsvöllur, GS |
1997 | Þorsteinn Hallgrímsson | GV | 1 | Hvaleyrarvöllur, GK |
1998 | Björgvin Sigurbergsson | GK | 2 | Grafarholtsvöllur, GR |
1999 | Helgi Þórisson | GS | 1 | Hólmsvöllur, GS |
2000 | Björgvin Sigurbergsson | GK | 3 | Strandarvöllur, GHR |
2001 | Haraldur Heimisson | GR | 1 | Garðavöllur, GL |
2002 | Guðmundur I. Einarsson | GR | 1 | Hvaleyrarvöllur, GK |
2003 | Haraldur Heimisson | GR | 2 | Hólmsvöllur, GS |
2004 | Birgir Leifur Hafþórsson | GKG | 3 | Grafarholtsvöllur, GR |
2005 | Ottó Sigurðsson | GKG | 1 | Hvaleyrarvöllur, GK |
2006 | Örn Ævar Hjartarson | GS | 1 | Grafarholtsvöllur, GR |
2007 | Ottó Sigurðsson | GKG | 2 | Urriðavöllur, GO |
2008 | Hlynur Geir Hjartarson | GK | 1 | Korpúlfsstaðavöllur, GR |
2009 | Kristján Þór Einarsson | GM | 1 | Kiðjabergsvöllur, GBR |
2010 | Birgir Leifur Hafþórsson | GKG | 2 | Garðavöllur, GL |
2011 | Arnór Ingi Finnbjörnsson | GR | 1 | Strandarvöllur, GHR |
2012 | Haraldur Franklín Magnús | GR | 1 | Leirdalsvöllur, GKG |
2013 | Guðmundur Ágúst Kristjánsson | GR | 1 | Hamarsvöllur, GB |
2014 | Kristján Þór Einarsson | GM | 2 | Hvaleyrarvöllur, GK |
2015 | Axel Bóasson | GM | 1 | Jaðarsvöllur, GA |
2016 | Gísli Sveinbergsson | GK | 1 | Hólmsvöllur, GS |
2017 | Egill Ragnar Gunnarsson | GKG | 1 | Vestmannaeyjavöllur, GV |
2018 | Rúnar Arnórsson | GK | 1 | Hólmsvöllur, GS |
2019 | Rúnar Arnórsson | GK | 2 | Garðavöllur, GL |
2020 | Axel Bóasson | GK | 2 | Jaðarsvöllur, GA |
2021 | Sverrir Haraldsson | GM | 1 | Þorláksvöllur, GÞ |
2022 | Sigurður Bjarki Blumenstein | GR | 1 | Hlíðavöllur, GM |
2023 | Aron Snær Júlíusson | GKG | 1 | Hamarsvöllur, GB |
2024 | Logi Sigurðsson | GS | 1 | Garðavöllur, GL |