/

Deildu:

Auglýsing

Íslensk Getspá hefur frá upphafið stutt dyggilega við íþróttahreyfinguna og öryrkja með sölu á LOTTÓ. Stuðningur þessi er afar mikilvægur enda skiptir hann íþróttahreyfinguna miklu máli og rennir stoðum undir rekstur hennar. Til að vekja athygli á málstaðnum þá hefur verið gert myndband með laginu „Ég lifi í draumi“ en textanum hefur þó verið breytt.  Það er draumur íþróttamanna að ná árangri sinni grein og getur stuðningur þessi klárlega gert drauminn að veruleika.

Sjá má marga af okkar bestu íþróttamönnum í nýju hlutverki m.a leikur Íslandsmeisarinn í golfi Birgir Leifur Hafþórsson á fiðlu, Kolbeinn Sigþórsson sýnir ótúlega takta með rafmagnsgítarinn, Sara Björk Gunnarsdóttir leikur á hljómborð, landsliðsfyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson syngur bakraddir og svo mætti lengi telja.

Hugmyndin að gerð myndbandsins kviknaði í kjölfar nýjustu auglýsingaherferðar Lottó um stuðningsmanninn Leif Ottó sem mætir reglulega á íþróttakappleiki til að styðja sitt fólk.

Ég lifi í draumi hefur slegið í gegn í nýju Lottó auglýsingunum.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ