Dagana 12. og 13. apríl fer fram málþing í Háskóla Reykjavíkur sem ber yfirskriftina: „Verndun og velferð barna, unglinga og afreksmanna í íþróttum: Áskoranir og lausnir.“
Málþingið snýr að því mikilvæga málefni, sem velferð og öryggi barna, unglinga og afreksmanna í íþróttum er. Málþingið mun veita víðtækan og fjölbreyttan vettvang fyrir hagsmunaaðila til að taka þátt í innihaldsríkum umræðum, deila bestu starfsvenjum og vinna saman að því að þróa áhrifaríkar lausnir sem tryggja betur öryggi og um leið velferð íþróttafólks á öllum aldri.
- Að fræða hagaðila og vekja athygli á mikilvægi þess að hlúa enn frekar að velferð og heilsu iðkenda.
- Að veita hagsmunaaðilum vettvang til að læra, deila þekkingu, bestu starfsaðferðum og reynslu af verndun barna í íþróttum.
- Að opna fyrir umræður um þær áskoranir sem íþróttafélög standa frammi fyrir við innleiðingu verndarráðstafana og hvernig sé hægt að leysa þær áskoranir.
- Að leggja fram hagnýtar lausnir til að bæta vernd í íþróttum sem hagaðilar geta nýtt sér.
Viðburðurinn mun fela í sér fyrirlestra, pallborðsumræður, vinnusmiðjur og viðburði til að treysta tengslanet þátttakenda. Á ráðstefnunni munu taka til máls innlendir sem erlendir sérfræðingar í málaflokknum.
Aðgangseyri inn á ráðstefnuna er: 2.500 kr.
Skráning fer fram á eftirfarandi slóð: Skráning á Málþing 2024 – Fimleikasamband Íslands