Golfsamband Íslands

Máni Freyr er Íslandsmeistari í holukeppni 2024 í strákaflokki 13-14 ára

Íslandsmót unglinga 2024 í holukeppni fór fram á Kirkjubólsvelli í Sandgerði dagana 24.-26. ágúst.

Úrslitin réðust í dag, mánudaginn 26. ágúst.

Til úrslita í strákaflokki 13-14 ára léku Máni Freyr Vigfússon, GK og Björn Breki Halldórsson, GKG. Þar hafði Máni Freyr betur 2/0.

Arnar Freyr Viðarsson, GA, varð þriðji en hann sigraði Halldór Jónsson, GK í leiknum um bronsverðlaunin.

Öll úrslit úr þessum flokki eru hér fyrir neðan.


Smelltu hér fyrir úrslit leikja.

Frá vinstri Björn Breki Halldórsson GK Máni Freyr Vigfússon GK og Arnar Freyr Viðarsson GA
Exit mobile version