Golfsamband Íslands

Markús Marelsson sigraði á Global Junior mótaröðinni í Danmörku

Markús Marelsson á Íslandsmótinu í golfi 2023 á Urriðavelli. Mynd/seth@golf.is

Íslenski unglingalandsliðsmaðurinn Markús Marelsson sigraði í dag á Global Junior golfmóti sem fram fór á Lübker golfsvæðinu í Danmörku.

Markús, sem er búsettur í Danmörku, var í sérflokki á þessu móti en hann sigraði með 9 högg mun.

GK-ingurinn lék hringina þrjá á 75-71-74 eða 4 höggum yfir pari samtals.

Global Junior mótaröðin telur til stiga á heimslista áhugakylfinga.

Smelltu hér fyrir lokastöðuna:

Screenshot 2024 10 02 at 91921 PM
Exit mobile version