Fimm íslenskir keppendur hefja leik í dag á Opna breska áhugamannamótinu í kvennaflokki sem fer á Hunstanton vellinum á austurströnd Englands.
Mótið er eitt af allra sterkustu áhugamannamótum veraldar í kvennaflokki og á mótið sér langa sögu.
Alls eru 144 keppendur og er keppendahópurinn skipaður mjög sterkum leikmönnum.
Fyrstu tvo keppnisdagana er leikinn höggleikur og komast 64 efstu í holukeppnina sem tekur við eftir höggleikinn.
Ísland er með 5 keppendur og er það í sögulegu samhengi met. Aldrei áður hefur Ísland átt svo marga keppendur á þessu móti á sama tíma.
Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit.
Íslensku keppendurnir eru:
Andrea Bergsdóttir, Hills (Svíþjóð)/GKG
Hulda Clara Gestsdóttir, GKG.
Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, GR.
Perla Sigurbrandsdóttir, GR.
Ragnhildur Kristinsdóttir, GR.
1 keppnisdagur:
Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, GR, 73 högg.
Perla Sigurbrandsdóttir, GR, 74 högg.
Ragnhildur Kristinsdóttir, GR, 74 högg.
Andrea Bergsdóttir, Hills (Svíþjóð)/GKG, 78 högg.
Hulda Clara Gestsdóttir, GKG, 83 högg
Í fyrra náðu íslensku keppendurnir frábærum árangri á þessu móti. Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, GR, náði alla leið í úrslitaleikinn – sem er besti árangur sem íslenskur kylfingur hefur náð á áhugamannamóti. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR, var í efsta sæti eftir höggleikskeppnina, sem er árangur sem íslenskur kylfingur hefur ekki náð áður. Hulda Clara Gestsdóttir, GKG, komst einnig áfram í 64 manna úrslit í holukeppninni en þar var Jóhanna Lea mótherji Huldu Clöru í 1. umferð – þar sem að Jóhanna hafði betur.
Nánar um Hunstanton Golf Club völlinn hér:
Perla Sól er fædd árið 2006 en hún fagnar 16 ára afmæli sínu í haust og er því aðeins 15 ára gömul. Það er mikið afrek hjá ungum kylfingi á borð við Perlu Sól að vera með það lága forgjöf að hún komist inn á keppendalistann á svona sterku alþjóðlegu móti.
Samkvæmt reglum um áhugamannamót eru engin peningaverðlaun á þessu móti en það er að miklu að keppa.
Sigurvegarinn fær þátttökurétt á ýmsum atvinnumótum – og risamótum á LPGA og LET. Sú sem sigrar fær keppnisrétt á einu LET móti á þessu ári, auk þess að fá keppnisrétt á risamótunum AIG Women’s British Open 2022 og The Evian Championship 2022. Á næsta ári fær sigurvegarinn keppnisrétt á Opna bandaríska meistaramótinu (US Open) og The Augusta National Women’s Amateur Championship 2023.



