Frá Íslandsmóti 14 ára og yngri á Nesvelli 2024. Mynd/seth@golf.is
Auglýsing

Golfíþróttin á Íslandi nýtur æ meiri vinsælda. Þegar nýjustu tölur golfklúbba eru skoðar þá fjölgaði kylfingum um 9% milli ára eða um rúmlega 2.000 kylfinga á öllum aldri.

Golfsambandið hefur spáð fyrir um 2% fjölgun kylfinga árlega og fer þetta því fram úr björtustu vonum.

Kylfingar á Íslandi hafa aldrei verið fleiri en nú. Þann 1. júlí 2024 voru 26.349 félagsmenn skráðir í golfklúbba víðs vegar um landið.

Þetta er aukning um rúmlega 2000 kylfinga frá því í fyrra eða sem nemur 9% aukningu. Þetta er í fyrsta sinn sem heildarfjöldi félagsmanna fer yfir 26.000.

Kylfingum sem eru 15 ára og yngri fjölgar um 11% á milli ára en í aldurshópnum 29 ára og yngri var aukningin mest. Kylfingum á aldrinum 16-19 ára fjölgaði um 16% og 20% aukning var í aldurshópnum 20-29 ára.  

Í aldurshópnum 70-79 ára var 9% aukning og 14% aukning var í aldurshópnum 80 ára og eldri.

Eftirspurnin í golf á síðustu tvo áratugi hefur verið gríðarleg. Árið 2000 voru 8.500 kylfingar skráðir í golfklúbba landsins.

Árið 2000 voru 8.500 félagsmenn skráðir í golfklúbba landsins. Á síðustu 24 árum hefur félagsmönnum í golfklúbbum landsins fjölgað um tæplega 18.000 eða sem nemur 210%.

Golfsambandið er næst stærsta íþróttasambandið innan ÍSÍ með rúmlega 26.000 félaga en Knattspyrnusambandið er fjölmennast með um 29.000 félaga.

Árið 2019 eða fyrir sex árum voru tæplega 17.900 kylfingar skráðir í golfklúbba landsins – og hefur þeim fjölgað um tæplega 8.500 á síðustu fimm árum – sem er 47% aukning.

Hér má sjá tölulegar upplýsingar árið 2024.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ