/

Deildu:

Auglýsing

Kjart­an Lár­us Páls­son, far­ar­stjóri, blaðamaður og kylfingur lést á Land­spít­al­an­um síðastliðinn föstu­dag, 3. apríl, átt­ræður að aldri.

Þótt leiðir okkar Kjartans hafi ekki legið saman um árabil þá man ég vel eftir KLP, eins og hann var kallaður á skrifstofu golfsambandsins. Ég kynntist Kjartani þegar ég starfaði á skrifstofunni skömmu eftir aldamótin. Við urðum strax vinir og ég kunni að meta hversu bragðsterkur karakter hann var. Það fór ekki framhjá neinum þegar hann mætti á skrifstofuna. Hann hafði yfirleitt sterkar skoðanir á flestu sem sneri að rekstri golfsambandsins og var ófeiminn við að láta mann heyra það þegar honum fannst maður vera kominn utan vallarmarka. Alltaf komu ábendingar hans þó úr góðri átt. Hann bar hag íþróttarinnar fyrir brjósti.

Kjart­an var mik­ill áhugamaður um íþrótt­ir og snemma á sjö­unda ára­tugn­um hóf hann að skrifa íþróttaf­rétt­ir fyr­ir Vísi und­ir skamm­stöf­uninni -klp-. Kjartan kynntist golfíþróttinni árið 1969 þegar hann var á kynningarmóti fyrir íþróttafréttamenn á Nesvellinum. Á þeim tíma var golfíþróttin ekki áberandi á síðum dagblaða en Kjartan var þá blaðamaður á Tímanum. Kjart­an starfaði sem blaðamaður í um 25 ár, áður en verkefnin færðust yfir í fararstjórn. Hann var einn af frumkvöðlunum í golfferðaþjónustu á Íslandi og starfaði sem fararstjóri í rúmlega þrjá áratugi. Þeir kylfingar sem fóru með Kjartani til Spánar, Írlands, Hollands og Taílands munu seint gleyma þeim ferðum. Kjartan var úrvals fararstjóri og mikill skemmtikraftur.

Kjartan sinnti ýmsum sjálfboðastörfum innan golfhreyfingarinnar um áratugaskeið. Hann starfaði um árabil fyrir Nesklúbbinn, var liðsstjóri ung­linga­landsliðs karla í golfi árið 1973 og á ár­un­um 1979-1986 var hann ein­vald­ur og liðstjóri karla­landsliðsins í golfi.

Kjartan var um tíma sá íslenski kylfingur sem oftast hafði farið holu í höggi. Hann átti Íslandsmetið en alls tókst honum að grísa sig máttlausan sex sinnum. Þetta afrek hans varð til þess að hann var sjálfskipaður formaður Einherjaklúbbsins, sem er sá klúbbur sem allir kylfingar vilja ganga í en enginn getur sótt um aðild að. Kjartan sinnti klúbbnum af einurð og átti gjarnan af þeim sökum erindi á skrifstofu golfsambandsins. Hann lét af formennsku í Einherjaklúbbnum eftir 34 ár, þegar Björgvin Þorsteinsson náði metinu af honum með sjöunda draumahöggi sínu. Kjartan náði einnig því tvívegis að leika par 5 holu á tveimur höggum, eða Albatros, eins og það kallast á golfmáli.

„Í fyrra skiptið var það á velli í Frakklandi og ég setti annað höggið ofaní af um 120 metra færi. Upphafshöggið rúllaði endalaust niður brekku og ég hafði heppnina með mér. Í síðara skiptið var ég staddur á Írlandi og þar sló ég annað höggið í stein eða eitthvað álíka því hollið á undan okkur fann boltann ofan í holunni,” sagði Kjartan í viðtali við Golf á Íslandi í október 2014.

Skemmilegur kylfingur er nú fallinn frá, sem hefur skilið eftir sig djúp fótspor í íslenskri golfsögu. Um leið og ég þakka Kjartani fyrir allt hans óeigingjarna starf í þágu golfhreyfingarinnar þá færi ég eiginkonu hans, börnum, barnabörnum og barnabarnabörnum innilegar samúðarkveðjur.

Haukur Örn Birgisson, forseti Golfsambands Íslands.

Kjartan L. Pálsson er hér lengst til vinstri með landsliði Íslands
á EM áhugakylfinga á St. Andrews árið 1981.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ