Kristín Halldóra Pálsdóttir, hjúkrunarfræðingur og afrekskylfingur, lést á líknardeild Landspítalans 10. september 2020. Kristín fæddist 14. maí 1945 í Hafnarfirði og var 75 ára þegar hún lést. Hún var m.a. hjúkrunarforstjóri Heilsugæslunnar í Hafnarfirði og síðar framkvæmdastjóri sömu stofnunar.
Kristín var afrekskona í þeim íþróttum sem hún stundaði. Hún varð m.a. tvívegis Íslandsmeistari með liði FH í handknattleik en golfíþróttin átti hug hennar allan eftir að handboltaferlinum lauk. Kristín var sannarlega ein af driffjöðrum golfíþróttarinnar á Íslandi og sérstök fyrirmynd kvenna í golfi.
Kristín hóf golfiðkun hjá Golfklúbbnum Keili árið 1970. Með markvissum æfingum frá upphafi náði mjög fljótt góðum tökum á golfíþróttinni, með það fyrir augum að ná árangri. Æfingarnar skiluðu árangri og aðeins fimm árum eftir að hún byrjaði í golfi varð hún Íslandsmeistari. Þá tókst henni að verja titilinn árið 1976.

Hún var fyrsti kylfingurinn úr Golfklúbbnum Keili sem fagnaði Íslandsmeistaratitli í golfi í kvennaflokki. Kristín ruddi einnig brautina fyrir íslenska afrekskylfinga í kvennaflokki. Hún tók fyrst íslenskra kvenna þátt í alþjóðlegu golfmóti þegar hún lék í Kalmar í Svíþjóð árið 1976.
Hjá Keili varð Kristín margfaldur klúbbmeistari. Hún varð einnig margfaldur Íslandsmeistari í keppni eldri kylfinga og lék m.a. með fyrsta landsliði eldri kylfinga í kvennaflokki. Afrekaskrá Kristínar í golfíþróttinni er löng en hún tók þátt í fjölmörgum alþjóðlegum verkefnum, í keppni einstaklinga og liða.
Kristín lét mikið að sér kveða á mörgum sviðum golfhreyfingarinnar og skilur eftir sig djúp spor í íslenskri golfsögu.
Kristín var ekki aðeins fremst í flokki í keppni á golfvellinum. Hún var einnig mjög virkur þátttakandi í félagsstarfi Golfklúbbsins Keilis og einnig hjá Golfsambandi Íslands. Kristín var í 13 ár liðsstjóri kvennalandsliðsins á fjölmörgum mótum víðsvegar um heiminn, þar sem reynsla hennar og þekking kom að góðum notum. Kristín sat meðal annars í stjórn Keilis, Golfsambands Íslands og Landssambandi eldri kylfinga. Hún var sæmd gullmerki Keilis og GSÍ fyrir ómetanlegt framlag sitt til golfíþróttarinnar.
Golfsamband Íslands færir fjölskyldu og aðstandendum Kristínar innilegar samúðarkveðjur.

Ómar Jóhannsson og Guðmundur S Guðmundsson
Neðri röð frá vinstri Kristín Pálsdóttir Konráð Bjarnason forseti GSÍ og Gísli Sigurðsson MyndGSÍ

Jakobína Guðlaugsdóttir GV fylgist með Ljósmynd Kristinn Benediktsson