Púttmót fer fram í Hraunkoti hjá Golfklúbbnum Keili mánudaginn 12. ágúst en mótið er haldið til minningar um Hörð Barðdal.
Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í tveimur flokkum fatlaðra.
Það eru allir velkomnir og það kostar ekkert að taka þátt.
Mótið hefst kl. 18.00 mánudaginn 12. ágúst.
Hörður Barðdal var frumkvöðull að koma golfíþróttinni á framfæri fyrir fatlað fólk. Hann var m.a. valinn fyrstur allra sem íþróttamaður ársins hjá fötluðu íþróttafólki árið 1977.
GSFÍ, golfsamtök fatlaðra á Íslandi, standa að baki þessu móti sem hefur farið fram árlega um margra ára skeið.
Golfæfingar GSFÍ standa yfir allt árið í Hraunkoti, æfingasvæði golfklúbbsins Keilis Hafnarfirði og allir eru velkomnir að mæta. GSFÍ lánar púttera og kúlur og allir eru velkomnir að taka þátt.