Mótaskrá GSÍ 2014 er þessa dagana að taka á sig endanlega mynd eftir að nefnd sem golfþing lagði til að stofnuð yrði hefur skilað af sér sínum tillögum. Gert er ráð fyrir að sjö mót verði á Eimskipsmótaröðinni sem hefst 24. maí á Hólmsvelli í Leiru.
Á Íslandsbankamótaröðinni verða sex mót, það fyrsta 24. maí á Garðavelli hjá Golfklúbbnum Leyni. Sú breyting verður á í flokki 17-18 ára að leiknar verða 54 holur eða þrír hringir í stað tveggja. Þetta nýja fyrirkomulag verður í í tveimur af stigamótum sumarsins og er gert vegna reglna um heimslista áhugamanna. Keppendur í þessum flokki munu því hefja leik degi fyrr en aðrir keppendur.
Mótaskrá Áskorendamótaraðar Íslandsbanka er enn í vinnslu en þeirri vinnu ætti að ljúka á næstu dögum.
Eimskipsmótaröðin 2014
24.-25. maí Eimskipsmótaröðin (1) HÓLMSVELLI (GS). Leiknar 36 holur á laugardeginum og 18 á sunnudeginum. Hámarksfjöldi keppenda 84.
30. maí-1. júní Eimskipsmótaröðin (2) STRANDAVELLI (GHR). Leiknar 54 holur á 3 dögum. Hámarksfjöldi keppenda 144.
13. -15. júní Eimskipsmótaröðin (3) HAMARSVELLI (GB). Leiknar 54 holur á 3. dögum. Hámarksfjöldi keppenda 144.
27.-29. júní Eimskipsmótaröðin (4), Íslandsmót í holukeppni, HVALEYRARVELLI (GK). Samkvæmt reglugerð 32 í karlaflokki og 32 í kvennaflokki.
24.-27. júlí Eimskipsmótaröðin (5), Íslandsmót í höggleik, LEIRDALSVELLI (GKG). Hámarksfjöldi keppenda 150.
15.-17. ágúst Eimskipsmótaröðin (6) GARÐAVELLI (GL). Leiknar eru 54 holur á 3 dögum. Hámarksfjöldi keppenda 144.
30.-31. ágúst Eimskipsmótaröðin (7) JAÐARSVÖLLUR (GA). Leiknar eru 36 holur á laugardegi og 18 á sunnudeginum. Hámarksfjöldi 84.
13.-14. September KPMG Bikarinn LEIRDALSVELLI
Íslandsbankamótaröðin 2014
24.-25. maí Íslandsbankamótaröðin (1) GARÐAVELLI (GL). Leiknar 36 holur.
7. júní-9. júní Íslandsbankamótaröðin (2) HLÍÐAVELLI (GKj). Flokkur 17-18 ára byrjar á föstudegi og leikur 54 holur samtals, aðrir flokkar leika 36 holur og hefja leik á laugardeginum.
20. -22. júní Íslandsbankamótaröðin (3), Íslandsmót í holukeppni, URRIÐAVELLI (GO). Samkvæmt reglugerð um mótið ákvarðar mótsstjórn fjölda keppenda.
18.-20. júlí Íslandsbankamótaröðin (4), Íslandsmót í höggleik STRANDARVELLI (GHR). Samkvæmt reglugerð um mótið ákvarðar mótsstjórn fjölda keppenda.
15.-17. ágúst Íslandsbankamótaröðin (5) JAÐARSVELLI (GA). Flokkur 17-18 ára byrjar á föstudegi og leikur 54 holur samtals, aðrir flokkar leika 36 holur og hefja leik á laugardeginum.
6.-7. September Íslandsbankamótaröðin (6) GRAFARHOLTSVELLI (GR). Leiknar eru 36 holur á 2 dögum.