/

Deildu:

Auglýsing

Mótaskrá GSÍ 2014 er þessa dagana að taka á sig endanlega mynd eftir að nefnd sem golfþing lagði til að stofnuð yrði hefur skilað af sér sínum tillögum.  Gert er ráð fyrir að sjö mót verði á Eimskipsmótaröðinni sem hefst 24. maí á Hólmsvelli í Leiru.

Á Íslandsbankamótaröðinni verða sex mót, það fyrsta 24. maí á Garðavelli hjá Golfklúbbnum Leyni. Sú breyting verður á í flokki 17-18 ára að leiknar verða 54 holur eða þrír hringir í stað tveggja. Þetta nýja fyrirkomulag verður í í tveimur af stigamótum sumarsins og er gert vegna reglna um heimslista áhugamanna. Keppendur í þessum flokki munu því hefja leik degi fyrr en aðrir keppendur.

Mótaskrá Áskorendamótaraðar Íslandsbanka er enn í vinnslu en þeirri vinnu ætti að ljúka á næstu dögum.

Eimskipsmótaröðin 2014

24.-25. maí                          Eimskipsmótaröðin (1) HÓLMSVELLI (GS). Leiknar 36 holur á laugardeginum og 18 á sunnudeginum. Hámarksfjöldi keppenda 84.

30. maí-1. júní                     Eimskipsmótaröðin (2) STRANDAVELLI (GHR). Leiknar 54 holur á 3 dögum. Hámarksfjöldi keppenda 144.

13. -15. júní                         Eimskipsmótaröðin (3) HAMARSVELLI (GB). Leiknar 54 holur á 3. dögum. Hámarksfjöldi keppenda 144.

27.-29. júní                          Eimskipsmótaröðin (4), Íslandsmót í holukeppni, HVALEYRARVELLI (GK). Samkvæmt reglugerð 32 í karlaflokki og 32 í kvennaflokki.

24.-27. júlí                            Eimskipsmótaröðin (5), Íslandsmót í höggleik, LEIRDALSVELLI (GKG). Hámarksfjöldi keppenda 150.

15.-17. ágúst                       Eimskipsmótaröðin (6) GARÐAVELLI (GL). Leiknar eru 54 holur á 3 dögum. Hámarksfjöldi keppenda 144.

30.-31. ágúst                       Eimskipsmótaröðin (7) JAÐARSVÖLLUR (GA). Leiknar eru 36 holur á laugardegi og 18 á sunnudeginum. Hámarksfjöldi 84.

13.-14. September            KPMG Bikarinn LEIRDALSVELLI 

Íslandsbankamótaröðin 2014

24.-25. maí                          Íslandsbankamótaröðin (1) GARÐAVELLI (GL). Leiknar 36 holur.

7. júní-9. júní                       Íslandsbankamótaröðin (2) HLÍÐAVELLI (GKj). Flokkur 17-18 ára byrjar á föstudegi og leikur 54 holur samtals, aðrir flokkar leika 36 holur og hefja leik á laugardeginum.

20. -22. júní                         Íslandsbankamótaröðin (3), Íslandsmót í holukeppni, URRIÐAVELLI (GO). Samkvæmt reglugerð um mótið ákvarðar mótsstjórn fjölda keppenda.

18.-20. júlí                            Íslandsbankamótaröðin (4), Íslandsmót í höggleik STRANDARVELLI (GHR). Samkvæmt reglugerð um mótið ákvarðar mótsstjórn fjölda keppenda.

15.-17. ágúst                       Íslandsbankamótaröðin (5) JAÐARSVELLI (GA). Flokkur 17-18 ára byrjar á föstudegi og leikur 54 holur samtals, aðrir flokkar leika 36 holur og hefja leik á laugardeginum.

6.-7. September                 Íslandsbankamótaröðin (6) GRAFARHOLTSVELLI (GR). Leiknar eru 36 holur á 2 dögum.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ