Fyrsti keppnisdagur á Evrópumóti kvennalandsliða í golfi fór fram í dag á Urriðavelli. Þar eigast við allir bestu áhugakylfingar Evrópu en 20 þjóðir senda lið til keppninnar. Mótið er stærsta alþjóðlega keppnin sem fram hefur farið á Íslandi og fengu keppendur glæsilegt veður á fyrsta hringnum.