Signý Arnórsdóttir.
Auglýsing

Einvígið á Nesinu – Shoot out fór fram á Nesvellinum í frábæru veðri mánudaginn 1. ágúst. Þetta var í 20. skiptið sem mótið er haldið og eins og ávallt til styrktar góðu málefni. Það var heimamaðurinn Oddur Óli Jónasson úr Nesklúbbnum sem stóð uppi sem sigurvegari í Einvíginu á Nesinu 2016 og er þetta í fyrsta sinns sem hann sigrar á þessu móti.

Venju samkvæmt léku þeir kylfingar sem boðið var í mótið 9 holu höggleik í morgun. þar lék Aron Snær Júlíusson best allra eða á 31 höggi eða á fimm höggum undir pari vallarins. Næstir komu svo þeir Úlfar Jónsson á 32 höggum og Oddur Óli Jónasson á 33 höggum.

Eftir hádegið hófst svo Einvígið sjálft þar sem einn keppandi dettur út á hverri holu þar til tveir berjast um sigurinn á 9. holu. Að móti loknu var verðlaunaafhending og keppendum afhendur þakklætisvottur fyrir þátttökuna. Mótið er eins og áður sagði fyrst og fremst góðgerðarmót og afhenti Atli Einarsson, framkvæmdastjóri DHL á Íslandi Hákoni Hákonarsyni frá Umhyggju ávísun upp á eina milljón króna en Umhyggja er félag sem vinnur að bættum hag langveikra barna og fjölskyldna þeirra.

Úrslit í einvíginu urðu eftirfarandi:

1. sæti – Oddur Óli Jónasson, NK
2. sæti – Aron Snær Júlíusson, GKG
3. sæti – Björgvin Sigurbergsson, GK
4. sæti – Úlfar Jónsson, GKG
5. sæti – Kristján Þór Einarsson, GM
6. sæti – Hlynur Geir Hjartarson, GOS
7. sæti – Arnór Ingi Finnbjörnsson, GR
8. sæti – Karlotta Einarsdóttir, NK
9. sæti – Alfreð Brynjar Kristinsson, GKG
10. sæti – Ragnhildur Sigurðardóttir, GR

Keppendur á Einvíginu á Nesinu 2016.
Keppendur á Einvíginu á Nesinu 2016 ásamt forsvarsmönnum DHL og Umhyggju. Mynd/NK

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ