/

Deildu:

Valdís Þóra Jónsdóttir.
Auglýsing

Ólafía Þór­unn Krist­ins­dótt­ir úr GR er í 45.-55. sæti en Val­dís Þóra Jóns­dótt­ir úr GL er í 94.-98. sæti af 120 kepp­end­um á loka­úr­töku­mót­inu fyr­ir Evr­ópu­mótaröð kvenna í golfi. Ann­ar keppn­is­dag­ur móts­ins í Marra­kesh í Mar­okkó var í dag.

Ólafía lék á 74 högg­um í dag, tveim­ur yfir pari vall­ar­ins, og er sam­tals á þrem­ur yfir pari eft­ir tvo daga. Val­dís lék á 76 högg­um, fjór­um yfir pari, og er sam­tals á átta högg­um yfir pari.

Eftir 72 holur eða fjóra keppnishringi komast 60 efstu kylfingarnir inn á lokahringinn sem verður leikinn á Samanah vellinum. Miðað við fyrsta daginn eru þeir kylfingar sem eru á +2 öruggir áfram en Valdís er tveimur höggum frá því. Það á margt eftir að breytast á næstu þremur keppnisdögum. Í lok mótsins komast 30 efstu inn á LET Evrópumótaröðina. Besta skorið á fyrsta deginum var 67 högg eða -5 en þar var að verki Georgia Hall frá Englandi.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ