Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur lék samtals á einu höggi undir pari á Open Generali de Strasbourg sem fram fór í Frakklandi. Mótið er hluti af LETAS mótaröðinni sem er sú næst sterkasta í Evrópu hjá atvinnukonum í golfi.
ÓIafía endaði í 23. – 29. sæti (72-73-70) en sigurvegarinn var á 11 höggum undir pari, Oona Vartianen frá Finnlandi, og fékk hún um 800.000 kr. fyrir sigurinn.
Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni lék einnig á þessu móti en hún var einu höggi frá því að komast í gegnum niðurskurðinn (70-77).
Þetta er sjötta mótið sem þær Valdís og Ólafía taka þátt í á LET-Access mótaröðinni. Valdís var í 17. sæti á stigalistanum en féll niður í 22. sæti eftir þetta mót. Ólafía var í 20. sæti – en hún fór upp í 19. sæti eftir mótið í Frakklandi.
Það er að miklu að keppa á þessari mótaröð því fimm stigahæstu kylfingarnir í lok keppnistímabilsins fá keppnisrétt á LET Evrópumótaröð kvenna.