Ólafía Þórunn Kristinsdóttir komst ekki í gegnum niðurskurðinn á Walmart mótinu sem fram fer í Rogers í Arkansas í Bandaríkjunum á LPGA mótaröðinni. Ólafía lék hringina tvo á 69 og 73 höggum. Niðurskurðurinn miðaðist við -1 samtals en Ólafía var á parinu samtals.
Þetta er 15. mótið á tímabilinu hjá Ólafíu á LPGA mótaröðinni. Hún komst í gegnum niðurskurðinn á síðasta móti sem lauk s.l. sunnudag. Það var fjórða mótið þar sem hún kemst í gegnum niðurskurðinn.
Ólafía er í 125. sæti CME stigalistans það sem af er árinu 2018.