Golfsamband Íslands

Ólafía og Þórður bættu vallarmetin á Jaðarsvelli á Pro/Am mótinu

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Þórður Rafn Gissurarson ásamt Ágústi Jenssyni framkvæmdastjóra GA. Mynd/seth@golf.is

Það er ljóst að keppendur á Íslandsmótinu í golfi eru vel undirbúnir fyrir mótið sem hefst á fimmtudaginn á Jaðarsvelli á Akureyri. Vallarmetin voru bætt í dag á Pro/Am móti sem fór fram í dag en Golfklúbbur Akureyrar stóð að mótinu með glæsibrag. Áður en mótið hófst var Golfsamband Íslands og Golfklúbbur Akureyrar með fréttamannafund í golfskálanum á Jaðarsvelli þar sem farið var yfir ýmis atriði sem tengjast mótinu.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR lék best allra af bláum teigum í dag eða 68 höggum eða -3 en fyrra vallarmetið átti hin 14 ára gamla Andrea Ýr Ásmundsdóttir úr GA eða 72 högg (+1). Ólafía er því til alls líkleg á Íslandsmótinu en sérfræðingar sem golf.is fékk til að spá fyrir um úrslit mótsins voru nánast á einu máli að Ólafía verði Íslandsmeistari.

Þórður Rafn Gissurarson, Íslandsmeistari 2015, bætti einnig vallarmetið á Jaðarsvelli í dag en hann lék á 68 höggum eða -3. Hann bætti vallarmetið um tvö högg en Eyþór Hrafnar Ketilsson úr GA lék völlinn fyrir skemmstu á 70 höggum eða -1.

Þórður og Ólafía gerðu út um úrslitin í skemmtilegum „bráðabana“ við 18. flötina þar sem þau kepptust um að koma boltanum sem næst holu úr frekar erfiðri stöðu. Ólafía sló á undan og setti boltann 87 cm frá holunni en Þórður Rafn stóðst álagið og var 2 cm nær holu þegar Ágúst Jensson framkvæmdastjóri GA var búinn að mæla hvor þeirra væri nærri holu.

Það voru fleiri kylfingar sem léku vel í dag á Jaðarsvelli og má þar nefna að Birgir Leifur Hafþórsson, sexfaldur Íslandsmeistari úr GKG, lék á 69 höggum.

Íslandsmót 2016

Haukur Örn Birgisson forseti GSÍ
Haukur Örn Birgsson forseti GSÍ
Sigmundur Ófeigsson formaður GA
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Þórður Rafn Gissurarson ásamt Ágústi Jenssyni framkvæmdastjóra GA Myndsethgolfis
Þórður Rafn Gissurarson og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir Myndsethgolfis
Ólafía Þórunn vippar hér inn á 18 flötina Páll Ketilsson frá kylfinguris fylgist grannt með Myndsethgolfis
Ólafía Þórunn vippar hér inn á 18 flötina Páll Ketilsson frá kylfinguris fylgist grannt með Myndsethgolfis
Það voru margir að fylgjast með gangi mála í bráðbananum um sigurinn Mynd7sethgolfis
Það voru margir að fylgjast með gangi mála í bráðbananum um sigurinn Mynd7sethgolfis
Þórður Rafn Gissurason vippar hér inn á flötina á 18 Myndsethgolfis
Þórður Rafn Gissurason vippar hér inn á flötina á 18 Myndsethgolfis
Það var hörð keppni um sigurinn eins og sjá má
Ágúst Jensson framkvæmdastjór GA mælir hvor boltinn sé nær holu Myndsethgolfis

 

Úrsltin ráðinn Þórður var 2 cm nær holu en Ólafía
Exit mobile version