/

Deildu:

Guðrún Brá og Berglind.
Auglýsing

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR og Valdís Þóra Jónsdóttir úr GL eru báðar á meðal keppenda á ISPS Handa mótinu á LPGA mótaröðinni sem fram fer í Ástralíu. Mótið hefst 15. febrúar að staðartíma í Adelaide sem er á suðuströnd Ástralíu. Staðartíminn þar er 10 1/2 klst. á undan Íslandi.

Ólafía Þórunn hefur því kl 21.35 að íslenskum tíma miðvikudaginn 14. febrúar en þá er kl. rétt rúmlega átta að morgni fimmtudagsins 15. febrúar á keppnisstaðnum. Ólafía hefur leik á 10. teig og er hún ráshóp með Cydney Clanton og Angela Stanford.

Valdís Þóra hefur leik rétt fyrir kl. 03 aðfaranótt fimmtudagsins 15. febrúar eða kl. 13:29 að staðartíma. Valdís hefur leik á 1. teig og er hún ráshóp með Paula Reto og Saranporn Langkulgasettri.

Rástímana og skor keppenda má sjá hér: 

Þetta er í fyrsta sinn sem tveir kylfingar frá Íslandi keppa samtímis á sterkustu mótaröð heims í kvennaflokki. Mótið heitir ISPS Handa og er jafnframt opna ástralska meistaramótið.

Margir af sterkustu kylfingum heims eru á meðal keppenda.

Ha Na Jang frá Suður-Kóreu hefur titil að verja og hún mætir til leiks eftir níu mánaða keppnisfrí. Hún hefur sigrað á fjórum LPGA mótum á ferlinum. Jang hefur ekki setið auðum höndum í keppnisfríinu á LPGA mótaröðinni og nýtt tímann við æfingar og keppni í heimalandinu.

Sjö kylfingar sem taka þátt á þessu móti í Ástralíu fögnuðu sigri á LPGA móti á síðasta tímabili. Auk Jang eru það Brooke Henderson, Ariya Jutanugarn, Cristie Kerr, Katherine Kirk, Jin Young Ko, Haru Nomura, og So Yeon Ryu.

Lydia Ko mætir í sitt fyrsta mót á tímabilinu en hún náði ekki að sigra á móti í fyrra. Hún er aðeins tvítug en þrátt fyrir það er þetta í áttunda sinn sem Ko keppir á þessu þessu móti en hún er frá Nýja-Sjálandi. Ko er í 10 sæti heimslistans.

 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ