Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
Auglýsing

Íslensku atvinnukylfingarnir Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR og Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni náðu góðum árangri á ASGI meistaramótinu sem lauk í dag í Sviss. Ólafía endaði í 5. sæti á -5 samtals en hún náði sér ekki á strik á lokahringnum þar sem hún lék á 75 höggum. Valdís Þóra endaði í 7.–9. sæti en hún lék lokahringinn á 70 höggum og var samtals á -3.  Þetta er besti árangur þeirra á tímabilinu og besti árangur þeirra beggja frá upphafi á þessari sterku atvinnumótaröð.

Lokastaðan:

Mótið er hluti af LETAS atvinnumótaröðinni í Evrópu – sem er næst sterkasta atvinnugolfmótaröð kvenna á eftir sjálfri LET Evrópumótaröðinni.

Ólafía lék hringina þrjá á (70-66-75) eða 211 höggum en sigurvegarinn Olivia Cowan frá Þýskalandi lék á -9 samtals. Valdís lék mjög stöðugt golf en hún var á -2 í dag (71-72-70) og 213 höggum samtals.

Þetta er þriðja mótið sem þær taka þátt í á mótaröðinni en Valdís endaði í 12.–15. sæti á síðasta móti á Spáni en Ólafía endaði í 20.–30. sæti.

Valdís Þóra endaði í 35. sæti á fyrsta mótinu, Generali de Dinard,  sem fram fór í Frakklandi en Ólafía komst ekki í gegnum niðurskurðinn.

Árangur Valdísar á öðru móti tímabilsins Spáni er á meðal besta árangurs hennar á LETAS en hún náði 8. sæti á móti í Noregi í fyrra. Ólafía endaði í 13. sæti í fyrra á eina mótinu sem hún tók þátt í á LETAS mótaröðinni en hún var ekki með keppnisrétt á mótaröðinni en fékk boð um að taka þátt á einu móti.

Valdís og Ólafía hafa báðar fagnað Íslandsmeistaratitlinum í golfi tvívegis, Valdís 2009 og 2012, en Ólafía 2011 og 2014.

Þetta er þriðja mót keppnistímabilsins en íslensku kylfingarnir ætla að leggja áherslu á LET Access mótaröðina á þessu tímabili. Þetta er í fyrsta sinn sem tvær íslenskar konur eru með keppnisrétt á þessari mótaröð en Valdís Þóra er að hefja sitt annað tímabil á LET Access mótaröðinni.

Stigahæstu keppendurnir á LET Access mótaröðinni í lok keppnistímabilsins vinna sér inn keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni.

Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ